Veður

Dregur úr vindi og úr­komu í dag

Atli Ísleifsson skrifar
Undir kvöld stefnir í suðvestan þrjá til tíu metra á sekúndu og stöku smáél.
Undir kvöld stefnir í suðvestan þrjá til tíu metra á sekúndu og stöku smáél. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir allhvassri suðvestanátt með éljagangi í fyrstu og eru gular viðvaranir í enn í gildi um landið sunnan- og vestanvert fram eftir morgni.

Það dregur síðan hægt og rólega úr vindinum og úrkomunni þegar líður á daginn og undir kvöld stefnir í suðvestan þrjá til tíu metra á sekúndu og stöku smáél.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í kvöld byrji svo að snjóa eða að það verði slydda um landið suðaustan- og austanvert í hægum vindi fram til morguns. Þá komi mjög skörp vindaskil inn á landið þegar gengur í allhvassa eða hvassa sunnanátt á austanverðu landinu með hlýnandi veðri. Vestantil verður frekar hæg norðlæg átt og hiti um frostmark.

„Þessi skil á milli tveggja ólíkra vindátta og vindstyrks eru mjög skörp og ber líklegast niður einhvers staðar á Suðurlandsundirlendinu þó að óvissan sé nokkuð stór núna í morgunsárið. Með þessum skilum fylgir einnig úrkoma og verður hún rigning á A-landi, en slydda eða snjókoma þegar vestar dregur. Eins og staðan er núna stefnir í þurran morgundag lengst af vestast á landinu, en það getur breyst með lítilli tilfærslu þessara skila.“

Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Allhvöss eða hvöss sunnanátt og rigning S- og A-til, en snjókoma eða slydda fyrir norðan. Mun hægari breytileg átt V-ast og bjart með köflum. Hiti um frostmark N- og V-til upp í 8 stiga hita SA-lands.

Á sunnudag: Stíf suðlæg og síðan vestlæg átt með rigningu A-lands og hiti 3 til 8 stig, en snjókomu eða slyddu þegar vestar dregur og lækkandi hitastig. Útlit fyrir hægan vind og úrkomulítið veður allra vestast og hiti um og undir frostmarki. Styttir upp, lægir og kólnar um allt land um kvöldið.

Á mánudag: Vaxandi suðaustlæg og austlæg átt með rigningu víða, en úrkomulítið NA-til. Hlýnar í veðri.

Á þriðjudag: Stíf sunnanátt og rigning S- og V-lands, annars úrkomulítið. Hiti 3 til 10 stig.

Á miðvikudag: Snýst í norðlæga átt og snjókoma með köflum fyrir norðan, en þurrt sunnan heiða. Kólnar smám saman í veðri.

Á fimmtudag: Útlit fyrir norðlæga átt og snjókomu víða, en þurrt SV-lands. Hiti um og undir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×