Tónlist

Segir frá vinskapnum við Amy Winehouse, skuggahliðum frægðarinnar og bókinni Beyond Black

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Auglýsingin fyrir viðburðinn á Facebook. Þórunn er hér klædd í Dolce & Gabbana kjól sem hún fékk í gjöf frá Amy Winehouse.
Auglýsingin fyrir viðburðinn á Facebook. Þórunn er hér klædd í Dolce & Gabbana kjól sem hún fékk í gjöf frá Amy Winehouse. Facebook/Borgarbókasafnið Úlfársdal

Þórunn Antonía mun á Bókakaffi á Borgarbókasafninu Úlfársdal í kvöld ræða um Amy Winehouse, sem lést 23. júlí árið 2011. Talar Þórunn meðal annars um þátttöku sína í bókinni Beyond Black. 

Tónlistarkonan Þórunn Antonía flutti ung til London til þess að láta drauminn um tónlistarferil rætast. Hún lenti í spennandi ævintýrum þar í borg, starfaði með þekktum hljómsveitum og kynntist meðal annars söngkonunni heitinni, Amy Winehouse.

„Við kynnumst áður en hún verður heimsfræg, við kynnumst í gegnum sameiginlega vinkonu,“ sagði Þórunn í viðtali hjá hjá Ósk Gunnars á FM957 í hádeginu.  Þórunn var 18 eða 19 ára þegar hún kynntist Amy.

„Við urðum mjög góðar vinkonur. Hún féll frá svo allt of allt of snemma, líkt og svo margar perlur innan tónlistarbransans.“

Bestu vinir Amy skrifuðu um hana bókina Beyond Black sem gefin var út á síðasta ári. Þau báðu Þórunni Antoníu að skrifa einn kafla bókarinnar. Þórunn mun á viðburðinum í kvöld ræða vinskap þeirra og hvað gekk á hjá henni sjálfri í bransanum. 

Viðburðurinn hefst klukkan átta í kvöld en frekari upplýsingar má finna á Facebook






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.