Þórsarar knúðu fram sigur gegn Kórdrengjum Snorri Rafn Hallsson skrifar 2. febrúar 2022 17:00 Enn og aftur lá leiðin í Nuke þegar sjóðheitir Þórsarar mættu til leiks eftir glæsilegan sigur á Dusty í síðustu umferð. Að sama skapi virðist nokkur stígandi vera með Kórdrengjum sem þó hefur ekki gengið nægilega vel að klára leikina sína almennilega. Þeir sitja því enn á botni deildarinnar á meðan Þórsarar gera atlögu að toppsæti Dusty með hverjum sigri. Kórdrengir unnu hnífalotuna og hófu leikinn í vörn (Counter-Terrorists) en Þór byrjaði af krafti í sókninni. Luku þeir skammbyssulotunni á örskotsstundu án þess að missa mann og í þeirri næstu komu þeir sprengjunni snyrtilega fyrir og vörðu vel. Erfiðlega gekk fyrir Kórdrengi að fella Þórsara sem framkvæmdu aðgerðir sínar á leifturhraða og af miklu öryggi. Þreföld fella frá Xeny og fjórföld frá Hyperactive kom í veg fyrir að Þór stingi Kórdrengi af og með árásargjörnum varnarleik tókst Kórdrengjum að jafna í 4–4 og halda aftur af efnahag Þórs. Skiptust liðin þá á lotum og þegar Þórsarar komust yfir á ný þurftu Kórdrengir að finna aðrar lausnir í vörninni en að mæta framarlega og berjast. Það gekk þó ekki eftir. Voru Kórdrengir nokkuð klaufalegir á köflum og Þór því með yfirhöndina þegar fyrri hálfleik lauk. Staða í hálfleik: Þór 8 – 7 Kórdrengir Í síðari hálfleik brugðu Þórsarar sér í hlutverk aðgerðateymis FBI í vörninni. Aftur var skammbyssulotan gallalaus hjá Þórsurum og sú næsta eldsnögg þegar Peterr felldi 4 Kórdrengi hvern á fætur öðrum. Jók Þór þannig forskot sitt og útlitið farið að versna fyrir Kórdrengi. Kórdrengir gáfu þá í og með hröðum sóknum og frábæru einstaklingsframtaki nokkurra leikmanna tókst þeim að halda ágætlega í við Þórsara. Var framhaldið spennandi þar sem Þór barðist af afli til að halda forskotinu fram í síðustu loturnar. Kórdrengir veittu þeim góða viðspyrnu en Þórsarar höfðu betur að lokum. Lokastaða: Þór 16 – 13 Með sigrinum heldur Þór öðru sæti deildarinnar en í næstu umferð mætir Þór liðinu sem líklegast er til að ógna þeirri stöðu, Vallea. Leikurinn fer fram föstudaginn 11. febrúar, en þriðjudaginn 8. febrúar tekur botnlið Kórdrengja á móti toppliði Dusty. Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands. Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn