Tónlist

Hinn sænski DJ Seinfeld með lag ársins

Tinni Sveinsson skrifar
PartyZone birtir árslistann 2021 og á sænski tónlistarmaðurinn DJ Seinfeld besta lag ársins samkvæmt honum.
PartyZone birtir árslistann 2021 og á sænski tónlistarmaðurinn DJ Seinfeld besta lag ársins samkvæmt honum.

Það er árlegur viðburður að umsjónarmenn danstónlistarþáttarins PartyZone hói í fjöldan allan af plötusnúðum og taki saman árslista yfir það sem stóð upp úr í danstónlist á árinu.

Margir bíða eftir þessum árlega lista frá PartyZone og er þátturinn einn sá vinsælasti hvert ár hjá danstónlistarunnendum. Enda eru plötusnúðarnir með puttann á púlsinum og benda oftar en ekki á miklar gersemar.

32. árslistaþátturinn

Þetta er í 32. sinn sem PartyZone kynnir árslista með þessu sniði. Fyrsti árslistaþátturinn var á dagskrá framhaldsskólaútvarpsstöðvarinnar Útrásar í janúar 1991. Síðan þá hefur hann verið á dagskrá í janúar ár hvert, oftast á X977 og Rás 2. Á laugardaginn var listinn frumfluttur á X977 í fjögurra klukkustunda þætti og nú er hann einnig aðgengilegur hér á Vísi.

Íslenskir plötusnúðar búsettir víða um land og erlendis, auk hlustenda, hafa sent þeim Helga Má, Símoni FKNHDSM og Kristjáni Helga, umsjónarmönnum PartyZone, listana síðustu vikur. Þeir hafa legið yfir þeim og sett saman í einn árslista sem er opinberaður hér fyrir neðan.

Klippa: Árslisti Party Zone

Íslenskt lag í þriðja sæti og GusGus með tvö

„Árslistaþátturinn heppnaðist frábærlega. Listinn er fjölbreyttur og þéttur, eitthvað úr öllum senum í danstónlistinni. Þrátt fyrir að síðasta ár hafi verið mjög skrítið og fá stór gigg fyrir plötusnúðana þá var þátttakan í árslistanum mjög góð,“ segir Helgi Már Bjarnason, einn umsjónarmanna PartyZone.

Stigin á listanum dreifðust mikið og segir Helgi það benda til þess að plötusnúðarnir hafi verið með athyglina víða í fyrra. 

„Topplagið fékk stig frá flestum snúðunum. Það er slagari frá DJ Seinfeld en hann gaf út mjög góða plötu í fyrra, Mirrors, þar sem þetta lag er að finna. Íslandsvinurinn Blawan sem spilaði hér á landi fyrir nokkrum árum á Breakbeat.is kvöldi var nokkuð óvænt í öðru sæti með harða sleggju. Bronsmedalíuna og jafnframt efsta íslenska danslagið á árinu fékk Inspector Spacetime með gleðisprengjuna Dansa og Bánsa.“

„Annars áttu listamenn eins og Maceo Plex og GusGus góðu gengi að fagna enda með fleiri en eitt inn á Topp 50. Einnig mátti sjá listamenn eins og Roisin Murphy, Bonobo, Masters at Work, The Chromatics og Sofie Kourtesis lög á listanum. Sömuleiðis rötuðu velheppnaðar endurhljóðblandanir af gömlu ofursmellum frá tíunda áratugnum frá Fat Boy Slim og Faithless.“

Aftur í beinni á X977

Eins og áður kom fram var árslistinn frumfluttur í beinni útsendingu á X977 síðasta laugardag.

„Það var gaman að vera með árslistann í beinni í línulegri dagskrá. Við fundum að þetta var kærkomið enda margir sem hafa það fyrir hefð að hlusta á árslistann okkar. Í næstu þáttum keyrum við dansárið 2022 af stað með helling af plötusnúðum og frábærri tónlist. Vonandi verður skemmtanalífið líflegra og dansgólfin opin þegar líða tekur á árið,“ segir Helgi.


Tengdar fréttir

Bestu íslensku lög ársins að mati Óla Dóra

Í árslistaþáttum Straums á X-977 verður farið gaumgæfilega yfir tónlistarárið 2021. Fyrir viku taldi Óli Dóri umsjónarmaður útvarpsþáttarins niður bestu erlendu lög ársins 2021. Í þessari viku fer hann svo yfir íslensku lögin.

Bestu erlendu lög ársins að mati Óla Dóra

Í árslistaþáttum Straums á X-977 verður farið gaumgæfilega yfir tónlistarárið 2021. Á mánudaginn taldi Óli Dóri umsjónarmaður útvarpsþáttarins niður bestu erlendu lög ársins 2021. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.