Saga stal 5. sætinu af Ármanni Snorri Rafn Hallsson skrifar 15. janúar 2022 13:45 Fyrir leik liðanna í gærkvöldi var tilkynnt að úrvalsdeildin í CS:GO sem áður hét Vodafonedeildin væri orðin að Ljósleiðaradeildinni. En það var ekki eina breytingin því Saga hefur nú bætt við sig tveimur nýjum leikmönnum, þeim Skoon og Gudda, í stað Pandaz og Cris sem leika nú fyrir XY og átti Skoon heldur betur eftir að mæta sterkur til leiks. Saga og Ármann hafa átt í miklu basli undanfarið, tapað síðustu þremur leikjum og rétt náð að halda sér fyrir miðju deildarinnar. Í gærkvöldi lá leið liðanna í Mirage kortið enda vildi Ármann alls ekki mæta Sögu í Nuke sem teljast má þeirra heimavöllur. Fyrsta hnífalotan í Ljósleiðaradeildinni féll í skaut Ármanns, sem og fyrstu fellurnar en 7homsen var mættur aftur til leiks og lét skammbyssuna telja hjá Ármanni sem hóf leikinn í vörn (Counter-Terrorists). Fyrsta stigalotan fór þó til Sögu þegar nýliðinn Skoon krækti sér í tvöfalda fellu til að loka fyrstu lotunni. Ármann var þó ekki lengi að svara og vann næstu lotu með kröftugu spili á miðjunni og þar með var spennandi leikurinn hafinn. Liðin léku hratt og skiptust á lotum og var leikurinn öllu jafnari en þegar liðin mættust síðast og Saga pakkaði Ármanni 16-3 í Nuke. Loturnar reyndust Ármanni þó oft dýrar og þrátt fyrir að leikurinn væri algjörlega fram og til baka seig Saga fram úr á betri vopnum og vann síðustu tvær loturnar. Staða í hálfleik: Saga 9 - 6 Ármann Saga bætti næstu sex lotum við í upphafi síðari hálfleiks og sýndu að þeim langaði einfaldlega meira til þess að vinna leikinn. Þolinmæði Sögu ásamt hittni Skoon og Dom kom þeim því í virkilega gott forskot gegn máttlausum Ármanni þar sem einungis var líf í tveimur leikmönnum, þeim Kruzer og Vargi. Leikstíll Ármanns var flatur, þeir voru illa vopnaðir, nýttu búnað lítið sem ekkert til að skapa sér tækifæri og unnu einungis eina lotu í síðari hálfleik. Það var því hægur leikur fyrir Sögu að sigla sigrinum heim í þetta skiptið. Lokastaða: Saga 16 - 7 Ármann Ljóst er að innkoma Skoon í lið Sögu er til mikilla bóta, en fram að þessu hefur liðið þurft að reiða sig fullmikið á vappaspilarann ADHD og gengi liðsins algjörlega farið eftir dagsformi hans. Í þetta skiptið gátu Skoon, Dom og TurboDrake hins vegar farið fyrir liðinu og verður áhugavert að sjá hvernig þessi breyting kemur til með að hafa áhrif á næstu leiki Sögu. Með sigrinum er Saga komin upp fyrir Ármann og endi liðin jöfn að stigum á Saga innbyrðis viðureignirnar skuldlaust. Næsta skotmark Sögu hlýtur því að teljast XY sem er í sætinu fyrir ofan þá, fjórum stigum á undan, en eins og fyrr segir hafa bæði Cris og Pandaz fært sig frá Sögu til XY. Næsta þriðjudag mætir Saga hins vegar Þór og á föstudaginn tekur Ármann á móti Kórdrengjum og aldrei vita hvort taphrinu Ármanns ljúki þá, enda á Ármann nýju leikmennina KiddaDisco og Snowy enn uppi í erminni. Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands. Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn