Tónlist

Sjö listamenn og hljómsveitir hljóta Kraumsverðlaunin

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kraumsverðlaunahafar 2021.
Kraumsverðlaunahafar 2021. Kraumur

Sjö listamenn og hljómsveitir hlutu Kraumsverðlaunin í ár fyrir plötur sínar. Þetta er í fjórtánda sinn sem verðlaunin eru afhent.

 Á meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa Kraumsverðlaun frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 má nefna Hildi Guðnadóttur, Daníel Bjarnason, Hjaltalín, Lay Low, FM Belfast, Retro Stefson, Moses Hightower og Sóley.

Kraumsverðlaunin eru veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Mikil fjölbreytni einkennir verðlaunahafa ársins sem koma úr ýmsum áttum íslensk tónlistarlífs. Verðlaunaplöturnar spanna m.a. litróf popp og öfgarokks, pönk og jazz, house og danstónlistar.

Kraumsverðlaunin 2021 hljóta:

  • BSÍ - Stundum þunglynd ...en alltaf andfasísk
  • Ekdikēsis - Canvas Of A New Dawn
  • Eva808 – Sultry Venom
  • Inspector Spacetime - Inspector Spacetime
  • Skrattar - Hellraiser IV
  • Sucks to be you, Nigel - Tína blóm
  • Tumi Árnason - H L Ý N U N

„Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2013, og annað sinn í sögu Kraumsverðlaunanna, sem sjö listamenn og hljómsveitir hljóta verðlaunin. Hefð er fyrir því að sex plötur séu verðlaunaðar, en dómnefndin í ár sá hins vegar ástæðu fyrir því að verðlauna sjö plötur í ár - sem er til marks um þá miklu grósku sem einkennir íslnenskt tónlistarlíf í dag,“ segir í tilkynningu um verðlaunin.

Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum. 

Dúettinn Ultraflex tekur við Kraumsverðlaunum 2020.Aðsent

Kraumsverðlaunin eru valin af níu manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.

„Aðstandandi Kraumslistans og Kraumsverðlaunanna er Aurora velgerðasjóður sem styður þróun og menningu hérlendis sem erlendis í gegnum margvísleg verkefni sem er ætlað að örva samfélög á sjálfbæran máta.“


Tengdar fréttir

Til­nefningar til Kraum­sverð­launanna 2021 til­kynntar

Kraumsverðlaunin verða afhent í fjórtánda sinn síðar í þessum mánuði þar sem verðlaun verða veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.