Albumm

Steinar Fjeldsted spilar glænýja tóna á Le Kock

Steinar Fjeldsted skrifar

Það þekkja flestir Steinar Fjeldsted sem meðlim hljómsveitarinnar Quarashi en það vita kannski ekki allir að hann byrjaði sinn tónlistarferil sem plötusnúður.

14 ára gamall var kappinn kominn með tvo plötuspilara og mixer og blastaði hann eðal tónum yfir Vesturbæ Reykjavíkur. Á fimmtudaginn næstkomandi, 16. Desember mun Steinar spila geggjaða og glænýja tóna á Le Kock, Tryggvagötu 14 101 reykjavík. 

Steinar segist spila að mestu Tec house, electro, breakbeat og dass af Ambient og lofar hann trylltri stemningu og virkilega góðri tónlist.

Alls ekki láta þig vanta, það er sko stjarnfræðilega yndislegt að detta inn í eðal vibe, og það ekki jóla vibe! Fjörið hefst kl 19:00 og stendur til….. Hægt er að sjá Facebook viðburðinn HÉR








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.