Lífið

Unnur Ösp og Björn Thors mættu með börnin á Emil í Kattholti

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Unnur Ösp og Björn Thors mættu með börnin að horfa á Emil og Ídu.
Unnur Ösp og Björn Thors mættu með börnin að horfa á Emil og Ídu. Vísir/Elín Guðmunds

Sýningin Emil í Kattholti var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á laugardag. Sýningin er einstaklega skemmtileg, spennandi og stútfull af hæfileikaríku fólki. Sviðsmyndin í sýningunni er líka ótrúlega vel heppnuð og ævintýraleg.

Með hlutverk Emils og Ídu á frumsýningunni fóru Hlynur Atli Harðarson og Sóley Rún Arnarsdóttir. Þessir hæfileikaríku ungu leikarar bræddu allan salinn upp úr skónum og fengu standandi lófaklapp í lok sýningar. Þau skipta hlutverkunum með þeim Gunnari Erik Snorrasyni og Þórunni Obbu Gunnarsdóttur.

Sigurður Þór Óskarsson og Ásthildur Úa Sigurðardóttir fara á kostum sem Alfreð og Lína í þessari vel heppnuðu uppfærslu. Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikstýrir hópnum en með önnur hlutverk fara Árni Þór Lárusson,  Esther Talía Casey, Haraldur Ari Stefánsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir og Þorsteinn Bachmann.

Eliza Reed mætti ásamt börnunum á frumsýningu. Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri kíkti með þeim í smíðakofa Emils.Vísir/Elín Guðmunds
Gestir fengu að prófa að stíga inn í litla útgáfu af smíðakofa Emils í andyri Borgarleikhússins.Vísir/Elín Guðmunds
Lea Dagmar, Björg. Aðalbjörg, Karen, Sandra,Vísir/Elín Guðmunds
Flóra, Telma og KjartanVísir/Elín Guðmunds
Pétur Rúnar Heimisson, Pétur Björn Pétursson og Erla Rún PétursdóttirVísir/Elín Guðmunds
Halldór SigurðssonVísir/Elín Guðmunds
Ísold FreyjaVísir/Elín Guðmunds
Stefán Eiríkssom og Egill StefánssonVísir/Elín Guðmunds
Emil og Ída voru víða í áhorfendahópnum á frumsýningunni.Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Dóra Garðars, Sigurður Haralds, Krístín Ögmundsdottir framkvæmdastjóri, Dóra Krisín Ólafsdóttir, Haraldur Elí Sigurðsson og Halldór SigurðssonVísir/Elín Guðmunds
Hljómsveitin til hliðar við sviðið var umvafin stráum.Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds

Tengdar fréttir

Seldist upp á tíu sýningar á tólf klukku­tímum

Forsala á leikritið Emil í Kattholti hófst á miðnætti í gær og á hádegi í dag var búið að seljast upp 10 sýningar en sýningin verður á stóra sviði Borgarleikhússins.

Leitinni að Ídu og Emil í Katt­holti lokið

Listrænir stjórnendur uppsetningar Borgarleikhússins á leiksýningu um Emil í Kattholti hafa nú hitt öll þau tólfhundruð börn sem sóttust eftir því að leika Emil eða litlu systur hans Ídu í uppsetningunni og tekið ákvörðun um hver hreppa hlutverkin.

Tólf hundruð börn vilja leika Emil og Ídu

Um tólf hundruð börn hafa skráð sig í prufur fyrir hlut­verk syst­kinanna Emils og Ídu í leik­ritinu Emil í Katt­holti sem verður sýnt á Stóra sviðinu í Borgar­leik­húsinu næsta vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.