Lífið

Vill ryðja brautina fyrir aðra tvíkynhneigða

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóhannes Þór Skúlason segir íslenskt samfélag hafa tekið miklum framförum hvað varðar opinn hug þegar komi að kynhneigðum. Sigurinn sé þó ekki unninn.
Jóhannes Þór Skúlason segir íslenskt samfélag hafa tekið miklum framförum hvað varðar opinn hug þegar komi að kynhneigðum. Sigurinn sé þó ekki unninn. Vísir/Vilhelm

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það hafa tekið langan tíma að átta sig á því að hann væri tvíkynhneigður. Hann telur samfélagið opnara fyrir tvíkynhneigðum konum en körlum.

Þetta kemur fram í viðtali GayIceland við Jóhannes sem var aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í forsætisráðherratíð hans. Hann segir augu sín hafa opnast á viðburði í Norræna húsinu fyrir nokkrum árum þar sem tvíkynhneigðir karlar lýstu reynslu sinni.

„Þetta var smá skrýtið því enginn okkar hafði áður verið í herbergi með tveimur öðrum tvíkynhneigðum körlum, allavega sem við vissum af,“ segir Jóhannes í viðtalinu. Svo hafi komið í ljós að þeir voru reyndar fimm í herberginu.

Jóhannes kom út úr skápnum fyrir þremur árum og vonar að frásögn hans ryðja brautina fyrir aðra tvíkynhneigða. Að þeir verði stoltir og opnir varðandi tvíkynhneigðina.

„Við vitum að það eru tvíkynhneigðir karlmenn þarna úti. Fullt af þeim. En þeir virðast ekki, hvort sem það er með ráðum gert eða ekki, komast í kastljósið,“ segir Jóhannes Þór við GayIceland.

Þótt allir tvíkynhneigðir geti átt erfitt uppdráttar þá telur Jóhannes samfélagið opnara fyrir tvíkynhneigðum konum en körlum. Hann hafi sjálfur verið tíu ár, í gengum háskóla og í framhaldinu, að skilja tvíkynhneigð.

Jóhannes segir að heilt yfir hafi viðbrögðin verið góð þegar hann greindi frá tvíkynhneigð sinni. Sumir hafi farið fram úr sér og talið að fram undan væri skilnaður en Jóhannes er kvæntur.

„Það var vinahópur staddur í öðru partýi og ég heyrði að þegar þau sáu tíðindin á Facebook þá hefðu þau tekið andköf,“ segir Jóhannes. Allir hafi farið að velta skilnaði hans og eiginkonunnar fyrir sér. 

„Mamma var aðallega áhyggjufull um hvort þetta hefði áhrif á vinnuna mína,“ segir Jóhannes. Hann hafi verið heppinn hvað viðbrögðin varðaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.