Lífið

Steindi og Aron Can gerðu skrautlegt myndband við lagið Rólegur kúreki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Söngkonan Ida fór með hlutverk í myndbandinu enda er hún blind eins og talað er um í laginu. 
Söngkonan Ida fór með hlutverk í myndbandinu enda er hún blind eins og talað er um í laginu. 

Þátturinn Stóra sviðið er fjölskylduþáttur þar sem skemmtun og afþreying eru í aðalhlutverki.

Steinunn Ólína leggur fyrir þá Auðunn Blöndal og Steinda Jr., fyndnar og fjölbreyttar áskoranir í hverjum þætti.

Í þættinum síðasta föstudag mættu þau Bríet og Aron Can. Eitt af verkefnunum var að gera tónlistarmyndband við lag listamannanna í salnum.

Steindi og Aron Can átti því að gera tónlistarmyndband við lagið Rólegur kúreki með Bríeti. Þeir föttuðu greinilega ekki alveg innihald textans í laginu og fjallar myndbandið um líf kúreka.

Klippa: Steindi og Aron Can gerðu skrautlegt myndband við lagið Rólegur kúreki





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.