Nýr Kia Niro kemur haustið 2022 Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 27. nóvember 2021 07:00 Ný Niro. Fyrstu myndir af nýrri kynslóð Kia Niro hafa litið dagsins ljós. Hann verður frumsýndur á bílasýningunni í Seoul sem er að hefjast.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju. Kia Niro hefur verið vinsæll bíll Kia um allan heim undanfarin ár og hér á landi hefur hann verið einn söluhæsti bíllinn. Nýr Kia Niro breytist mjög mikið í útliti og bíllinn er nútímalegur og spennandi. Hönnunin er framúrstefnuleg og djörf og ber keim af Habaniro hugmyndabílnum sem kynntur var 2019. Hönnun Kia Niro er afgerandi og sker sig úr. Framhluti Niro er mjög breyttur með nýju og fallega hönnuðu grilli og LED ljósum sem gefa bílnum voldugt útlit. Afturhluti bílsins er dínamískur með flott hönnuðum ljósum og hárri gluggalínu. Nýr Niro á hlið. Innanrýmið er rúmgott og vel hannað fyrir ökumann og farþega. Það er nútímalegt með stórum skjá og vandað er til verka í efnisvali þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi. Kia Niro er afar umhverfismildur bíll en höfðar einnig til skilningarvitanna hvað varðar fallega hönnun og góða aksturseiginleika. Kia býður nú upp á Greenzone akstursstillingu sem sjálfkrafa færir tengiltvinnakstur í fullan EV rafakstur þegar við á til að auka sjálfbærni möguleika bílsins. Með nýjum Niro undirstrikar Kia þá stefnu að vera leiðandi í sjálfbærni í bílaheiminum. Kia Niro hefur verið í boði sem hreinn 100% rafbíll en einnig sem Plug-in Hybrid og með Hybrid vél. Ekki hefur verið gefið upp að svö stöddu hverjir aflgjafar nýja bílsins eru eða afköst. Nýr Kia Niro er væntanlegur á markað haustið 2022.
Vistvænir bílar Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent