XY nær sér aftur á skrið Snorri Rafn Hallsson skrifar 17. nóvember 2021 17:01 Eins og alltaf í Vodafonedeildininni í CS:GO var mikið í húfi fyrir XY og Vallea. Liðin voru jöfn að stigum í þriðja og fjórða sæti deildarinnar. Vallea, sem á síðasta tímabili lék undir fána XY hafði átt brösuglega byrjun en unnið þrjá leiki í röð á meðan XY fór vel af stað en réði ekki við toppliðin Þór og Dusty í síðustu viðureignum sínum. Aftur lá leiðin beinustu leið til Cedar Creek í Nuke kortið og vann XY hnífalotuna og byrjaði í vörn. Fyrsta lotan á erindi í sögubækurnar þar sem KiddiDisco lék sinn fyrsta leik í Vodafonedeildinni og rétt bjargaði lotunni fyrir horn þegar hann stóð í reykjarmekki og aftengdi sprengjuna einungis augnabliki áður en hann var felldur með hnífsstungu. Ágætis byrjun það og XY fór með völdin á kortinu í upphafi fyrri hálfleiks. Fyrstu fimm loturnar féllu XY í vil með góðum opnunum snjöllum lestri á leik Vallea. Í stöðunni 8-1 fór þó að síga undan fæti og Vallea komst á flug. Vallea hægði örlítið á leik sínum en með því að sækja opnanir snemma í lotum og fara samstilltir í aðgerðir tókst þeim að vinna allar loturnar sem eftir voru í fyrri hálfleik. Þannig glataði XY peningaforskotinu sem hafði verið töluvert og vörn þeirra molnaði í sundur. Staða í hálfleik: Vallea 7 - 8 XY Aftur átti sér stað ótrúlegt atvik í fyrstu lotu síðari hálfleiks þegar KeliTurb0 var einn gegn tveimur andstæðingum með einungis 1% líf og tókst að fella leikmann Vallea sem var í þann mund að aftengja sprengjurnar. Brást Goa7er þar bogalistin sem var í dauðafæri til að fella KelaTurb0, en þar sviku dúllurnar góðan dreng. Leikmenn XY virtust staðráðnir í að missa ekki tökin á leiknum aftur og með rósemd og yfirvegun sigldu þeir sigrinum heim. Frumraun KiddaDisco var gríðarlega góð og ljóst að hann á vel heima í þessari góðu liðsheild og fullt erindi í efstu deild. Lokastaða: Vallea 9 - 16 XY Með sigrinum kom XY sér í þriðja sæti deildarinnar á eftir Dusty og Þór, en næst leikur XY gegn Ármanni á föstudaginn í næstu viku. Vallea er aftur á móti dottið niður í fimmta sæti og á erfiðan leik fyrir höndum þegar liðið mætir Dusty í næstu viku. Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands. Rafíþróttir Vodafone-deildin
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn