Lífið

„Er til öruggari staður til að vera á?“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Eiður Arnarsson á tónleikum Todmobile í Eldborg. Myndin er tekin þann 30. október síðastliðinn.
Eiður Arnarsson á tónleikum Todmobile í Eldborg. Myndin er tekin þann 30. október síðastliðinn. Kristinn R. Kristinsson

Tónlistarmenn telja að komið hafi verið til móts við viðburðahaldara með nýjum sóttvarnarreglum. Fimm hundruð mega koma saman á viðburðum, gegn framvísun neikvæðs hraðprófs.

Eiður Arnarsson, bassaleikari og tónlistarmaður, segir í samtali við fréttastofu að nýkynntar takmarkanir taki tímabært tillit til sitjandi viðburða. Djammið sé einfaldlega ekki það sama og sitjandi viðburðir, þar sem farið er eftir sóttvarnarreglum.

„Ég held að sóttvarnaryfirvöld hafi einfaldlega séð skynsemina og ljósið í því, að það er ekki rétt að bera jafnólíka hluti saman. Sitjandi viðburðir í númeruðum sætum, undir öllum ströngustu takmörkunum og reglum - [gagnstætt] einhvers konar kös af fólki að drekka áfengi.“

Fimm hundruð manns nægi

Eiður segir að talan, hið fimm hundruð manna hámark, sé það besta sem hægt hafi verið að vonast eftir. Fimm hundruð manns, eða fimm hundruð manna hólf nægi fyrir flesta viðburði, en lækki sú tala er ólíklegt að stærri viðburðir beri sig.

Hann telur ekki að hraðpróf muni koma til með að minnka áhuga fólks á að sækja viðburði. Hafi fólk á annað borð raunverulega ætlað sér að mæta á viburð, ætti prófið ekki að stoppa það.

„Það er hreinlega erfitt að ímynda sér öruggari stað til að vera á, heldur en stað þar sem allir eru með sama hraðpróf og þú,“ segir Eiður.

Tónlistarmaðurinn vakti upphaflega athygli á málinu á Facebook-síðu sinni. Þar taka fjölmargir tónlistarmenn í sama streng. Páll Óskar þakkar fyrir skrifin og Friðrik Ómar segir „bravó!“ 


Tengdar fréttir

Viðburðahaldarar telja að ástandið geti endað með ósköpum

Aðstandendur skipulagðra tónleika og viðburða sendu frá sér yfirlýsingu fyrr í kvöld. Með yfirlýsingunni vilja þau vekja athygli á mikilvægi þess að þrengja ekki frekar að viðburðarhaldi á næstu vikum og mánuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.