Lífið

Líklega flúruðustu hjón landsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rúnar Hroði og Eyrún stefna að því að vera með fullskreytan líkama. 
Rúnar Hroði og Eyrún stefna að því að vera með fullskreytan líkama. 

Þættirnir Afbrigði í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.

Í síðasta þætti kynnti Ingileif sér fólk sem lifir og hrærist í heimi húðflúra hér á landi.

Hjónin Rúnar Hroði og Eyrún Telma Jónsdóttir eru líklega flúruðustu hjón landsins og stefna bæði að svokölluðu full body suit eða fullskreyttum líkama af húðflúrum. Þrátt fyrir að fólki finnst þau oft líta vígalega út eru þau fjölskyldufólk sem lifir hæglætislífi með tvíbura sonum sínum.

„Ég veit ekki hvaðan þetta kemur en mig hefur alltaf langað að vera með ógeðslega mikið af flúrum. Fjórtán ára pantaði ég mér minn fyrsta tíma og það á átján ára afmælisdaginn minn, fjórum árum áður. Mér fannst þetta kúl og mig langaði að verða öðruvísi, ekkert flóknara en það,“ segir Rúnar.

„Þetta er svipað hjá mér. Mér hefur alltaf langað að vera þannig að falla ekki alveg inn í normið. Ég var byrjuð að fá mér nokkur þegar við kynnumst en síðan eftir það var hann að vinna á tattústofu og auðvelt aðgengi. Ég fékk margar spurningar eftir að við byrjuðum saman, hvort ég væri að gera þetta fyrir kærastann minn og ég sagði alltaf, nei ég er að gera þetta fyrir mig,“ segir Eyrún en brot úr þættinum í gær má sjá hér að neðan.

Klippa: Líklega flúruðustu hjón landsins





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.