Innlent

Truflandi að heyra öskur flug­línu­­gesta á meðan ættingjar syrgja ást­vini

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Sara Oskarsson telur fluglínuna of nálægt duftgarðinum í Fossvogi.
Sara Oskarsson telur fluglínuna of nálægt duftgarðinum í Fossvogi. vísir

Kona sem fer reglulega að duftgarðinum í Fossvogi segir truflandi að heyra í öskrandi gestum fluglínunnar í Perlunni á meðan ættingjar syrgja ástvini sína. Hún telur staðsetningu línunnar óheppilega.

Sara Oskarsson kemur reglulega við í duftgarðinum í Fossvogi til þess að eiga kyrrðarstund hjá leiði móður sinnar. Hún segir öskur og mikinn hávaða liggja frá fluglínunni sem sé óþægilegt á stundum sem þessum.

Truflandi á svo persónulegum stað

„Þetta er truflandi. Þetta er griðastaður fyrir syrgjendur. Fyrir ættingja og náttúrulega hvíldarstaður fyrir þann ástvin sem maður hefur misst,“ sagði Sara Oskarsson, listamaður.

Hún segir fluglínu skemmtilegt framtak en að það eigi ekki saman við griðarstað syrgjenda.

„Maður upplifir ákveðna óvirðingu við staðinn að, þetta sé í þessari nánd.“

Kirkjugarðar séu persónulegir og viðkvæmir staðir. Sara lýsir því þegar fjölskyldan pantaði á dögunum nýjan legstein fyrir leiði móðurinnar.

„Og ég fann fyrir smá kvíða yfir tilhugsuninni um að það væri kannski steggjun eða gæsun í gangi í Zipline á meðan við vorum að reyna að eiga mjög persónulega stund.“

Í myndbandinu sést fjarlægðin á milli duftgarðsins og fluglínunnar. Þeir sem fréttamaður ræddi við segja að hljóðbært sé á svæðinu, sérstaklega í logni.

Magnús Lyngdal vakti fyrstur athygli á málinu í þessari færslu á Facebook og fagnar Sara samtali og umræðu um málið. Hún tekur fram að óhjákvæmilega séu umhverfishljóð á svæðinu. Leiksvæði fyrir börn sé skammt frá kirkjugarðinum og stöðug umferðarhljóð.

„Einhvern vegin er það allt annar hlutur miðað við þetta. Þetta er svolítið viðlíka því að setja tívolí hér við hliðina á. Það bara passar ekki.“

Hún vonast til þess að gerðar verði ráðstafanir svo að fluglínan verði ekki til frambúðar á svæðinu.

„Ég er mjög bjartsýn á að þessu verði sýndur fullur skilningur á þessu hjá borginni og þeim aðilum sem koma að rekstri Zipline.“

Í lögum um kirkjugarða kemur fram í 3. mgr. 6. gr. að ekki megi reisa mannvirki, starfrækja stofnanir eða reka fyrirtæki, sem frá stafar hávaði eða ys, í nánd við kirkjugarða. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×