Lífið

Sóli Hólm hringdi í kjósendur sem Sigmundur Davíð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sóli Hólm er algjörlega frábær eftirherma og hefur gert heilt uppistand í kringum það.
Sóli Hólm er algjörlega frábær eftirherma og hefur gert heilt uppistand í kringum það. Vísir/Vilhelm

Sóli Hólm og Máni eru gestir í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Blökastið. Sóli Hólm er nýlega farinn af stað með nýtt eftirhermuuppistand og því var við hæfi að fá hann til þess að taka eitt símaat.

Í klippunni hér fyrir neðan má heyra þegar Sóli þykist vera Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Hringdi hann mann að nafni Guðmundur og þóttist vera að taka púlsinn á kjósendum eftir kosningahelgina.

„Mig langaði bara að athuga hvort þitt atkvæði hefði ratað á réttar slóðir,“ byrjaði Sóli á að spyrja.

Þátturinn í heild sinni er kominn út og aðgengilegur áskrifendum. Símaat Sóla Hólm má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Sóli Hólm gerði símaat sem Sigmundur Davíð

Blökastið er áskriftarhlaðvarp með Audda, Steinda og Agli úr útvarpsþættinum FM95BLÖ. Nýir þættir koma út á hverjum þriðjudegi, ásamt skemmtilegu aukaefni eins og reglulegum sjónvarpsþáttum. Nánar á FM95BLO.is.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.