Lífið

Ótrúleg lokaútkoma á kofaskúrum Jóa og Atla afhjúpuð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Svona litu skúrarnir út fyrir breytingar.
Svona litu skúrarnir út fyrir breytingar. Samsett

Leikararnir og vinirnir Atli Þór Albertsson og Jóhann G. Jóhannsson vildu báðir setja skúr í garðana sína. Í síðustu tveimur þáttum af Gulli byggir hafa áhorfendur fengið að fylgjast með þeim gera upp tvo gamla vinnuskúra.

 Lokaútkoman var svo afhjúpuð í þættinum í gær. Eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan enduðu þetta sem mjög ólíkir skúrar. Annar er hugsaður sem betri stofa á pallinum en hinn er hugsaður sem mótorhjólageymsla. 

Klippa: Lokaútkoman á kofaskúrum Jóa og Atla

Skúrinn hans Atla er innréttaður eins og falleg stofa og í honum er kælir. Stórir gluggar út á pallinn setja flottan svip á skúrinn og lýsingin er einstaklega falleg í myrkrinu. 

Kofi Atla er falleg viðbót við pallinn.Samsett

Skúrinn hans Jóa er dökkur og að innan er hann veggfóðraður. Leðurhúsgögn fá að njóta sín og á honum er einnig lítil bílskúrshurð.

Kofi Jóa kemur vel út í garðinum og tók hann grasið líka í gegn í leiðinni.Samsett

Tengdar fréttir

Þjófstart í kofastríði Jóa og Atla: „Hirti svínið ofn?“

Leikararnir og vinirnir Atli Þór Albertsson og Jóhann G. Jóhannsson vildu báðir setja skúr í garðana sína. Þeir hittust í fermingu og Atli Þór sagðist ætla að kaupa sér skúr og þá sagði Jói að hann ætlaði að smíða sinn sjálfur.

Matti tók íbúðina í gegn á aðeins fimm vikum

Matthías Óskarsson hefur búið í íbúð sinni í Árbæ í þrjú ár en ákvað á dögunum að gjörbreyta henni. Gulli Helga fékk að fylgjast með og taka þátt í ferlinu og var sýnt frá ævintýrinu í fyrsta þætti vetrarins af Gulla byggi á Stöð 2 í gær. 

Sindri heimsótti Gulla í sumarbústaðinn

Gulli Helga vinnur nú að því að stækka sumarbústaðinn sinn og segir að þetta sé afslöppun, svona eins og margir aðrir velja að spila golf í frítímanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.