Tónlist

Hróðmar Sigurðsson gefur út sína fyrstu plötu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hróðmar Sigurðsson heldur útgáfutónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur í kvöld.
Hróðmar Sigurðsson heldur útgáfutónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur í kvöld. Aðsent

Í dag gaf gítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson út sína fyrstu plötu og kemur hún út á vegum Reykjavik Record Shop. Útgáfutónleikar verða haldnir í kvöld á Jazzhátíð Reykjavíkur í Flóa, Hörpu klukkan átta.

Frá árinu 2020 hefur Hróðmar starfrækt hljómsveit sína sem samanstendur af einvalaliði tónlistarfólks. Lög og útsetningar eru í höndum Hróðmars en með hljómsveitinni hefur þróast hljóðheimur sem hverfist um rafgítarinn og haganlega samofnar brassútsetningar sem kallast á við kraumandi takt hjá ryþmasveit og má heyra innblástur frá hinum ýmsu tónlistarstílum. 

Platan var tekin upp í Sundlauginni vor og haust 2020, Birgir Jón Birgisson sá um upptökustjórn, Kjartan Kjartansson hljóðblandaði og hljómjafnaði og plötuumslag hannaði Þórdís Erla Zoega.

Á tónleikunum koma fram Hróðmar Sigurðsson á rafgítar, Ingibjörg Elsa Turchi á rafbassa,  Magnús Jóhann Ragnarsson á hammond orgel og hljómborð, Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Kristofer Rodriguez Svönuson á slagverk, Elvar Bragi Kristjónsson á trompet og flugelhorn,  Tumi Árnason á tenór saxófón og Ingi Garðar Erlendsson á básúnu.

Titill plötunnar er einfaldlega Hróðmar Sigurðsson.

Hróðmar lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH árið 2017. Síðan þá hefur hann starfað sem tónlistarmaður og leikið tónlist með ýmsum tónlistarmönnum þvert á stíla, til dæmis Ife Tolentino, Elísabetu Ormslev, Teiti Magnússyni, Elísabetu Eyþórsdóttur og Ingibjörgu Tur. Miðasala fer fram á Tix.

Hér fyrir neðan má heyra lagið hans Gone fishing. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.