Heilbrigt líferni og öflugt ónæmiskerfi í stað bólusetningar Samúel Karl Ólason skrifar 7. ágúst 2021 14:15 Nökkvi Fjalar Orrason. Nökkvi Fjalar Orrason segist ekki vera á móti bólusetningum. Hann ætli þó í það minnsta í bili að treysta á að heilbrigt líferni og öflugt ónæmiskerfi geti verið ein öflugasta vörnin gegn Covid-19.
Þetta segir Nökkvi, sem er athafnamaður og áhrifavaldur, í færslu sem hann birti á Facebook í gær, þar sem hann vildi gera grein fyrir þeirri ákvörðun sinni að láta ekki bólusetja sig. Hann byrjar færsluna á því að taka fram að hann sé ekki mótfallinn bólusetningum og segir greinilegt að bóluefnin hjálpi í baráttunni við veiruna. Færsla Nökkva er á persónulegum nótum og segist hann hafa orðið fyrir mikilli gagnrýni síðan hann svaraði spurningu á Instagram og sagðist ekki hafa verið bólusettur. Sjá einnig: Auddi skýtur á Nökkva Fjalar fyrir að vilja ekki bólusetningu „Ég lærði sl. daga að það er krefjandi fyrir einstaklinga í samfélaginu okkar að hafa aðra skoðun heldur en flestir. Ég lærði að fólk í samfélaginu okkar þorir ekki að tjá sig vegna þess að það óttast að lenda í því sem ég lenti í, að vera dæmt af stórum hluta samfélagsins,“ skrifar Nökkvi. „Sem betur fer er ég með margra ára þjálfun í því að taka gagnrýni og hefur gagnrýnin eingöngu styrkt mig.“ Hann segist hafa skrifað færsluna í gær til að hvetja fólk til að tala upphátt og segja hvað því liggur á hjarta. Í færslunni ítrekar Nökkvi að ákvörðun hans um að láta ekki bólusetja sig sé ekki endanleg og hann sé sífellt að afla sér frekari upplýsinga. Héraðsmiðillinn Al.com birti í síðasta mánuði viðtal við lækni í Alabama í Bandaríkjunum sem sagðist hafa sett margt ungt og heilbrigt fólk í öndunarvél. Í mörgum tilfellum hefðu þau grátbeðið hana um bólusetningu áður en þau voru barkaþrædd. „Þau gráta og þau segja mér að þau hafi ekki vitað nóg. Þau töldu þetta vera gabb. Þau töldu þetta vera pólitískt. Þau héldu að þar sem þau væru með sérstakan blóðflokk, eða litarhátt að þau yrðu ekki veik. Þau héldu að þetta væri bara flensa. Þau höfðu rangt fyrir sér,“ sagði Brytney Cobia. Nökkvi segir einnig að það sé staðreynd að bóluefni verði á rannsóknarstigi til ársins 2023 og engar langtímaprófanir á áhrifum þeirra. Þó þau virðist örugg sé ekki nóg vitað og ómögulegt sé að segja til um áhrif til lengri tíma. Það er rétt að mörg bóluefni eru skráð á tilraunastigi næstu árin en það er ekki þó þau hafi verið samþykkt til notkunar. Þess í stað er það hefðbundið við þróun bóluefna að fylgjast með þeim. Þá er afar ólíklegt að bóluefni valdi langvarandi afleiðingum. Í lang flestum tilvikum komi fylgikvillar, ef þeir stinga yfir höfuð upp kollinum, á fyrstu vikunum eftir bólusetningu. Bóluefnin sjálf eru í líkömum þeirra sem eru bólusettir í skamma stund. Það sem þau gera er að kenna ónæmiskerfum að bregðast fljótt við smitum. Engin óþekkt efni í bóluefnum Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði og yfirlæknir ónæmislækninga á Landspítalanum, sagði nýverið frá því að engin óþekkt efni væru í bóluefnum. Þarna væru efni sem notuð hefðu verið lengi í lyf. Nökkvi sagði einnig að ljóst sé að bólusettur einstaklingur geti smitað aðra eins og óbólusettur einstaklingur. Þá segir hann vísbendingar um að það að huga að heilsu og lífsstíl dragi úr líkum á alvarlegum veikindum. Þá nefnir hann nokkur atriðið sem hann telji hjálpa sér við að viðhalda góðu líferni og verjast smiti og veikindum. Þar á meðal eru öndunaræfingar, vatnsdrykkja, föstur, hreyfing, hugleiðsla, dagbókarskrif, félagsleg tengsl, útivera og það að fara í kaldan pott. Veita mikla vörn gegn alvarlegum veikindum Það er rétt hjá Nökkva að öflug ónæmiskerfi séu mikilvæg þó þau komi ekki endilega í veg fyrir smit eða alvarleg veikindi og jafnvel dauða. Það er sömuleiðis rétt að bólusettir geti smitast af Covid-19 eins og aðrir, og smiti aðra eins og aðrir. Það á sérstaklega við Delta-afbrigðið, sem varð eins og öll afbrigði, til við stökkbreytingu við smit og greindist fyrst á Indlandi. Bólusetningar veita þó gífurlega mikla vernd gegn alvarlegum veikindum. Til marks um það má benda á að í júní voru 99,2 prósent þeirra sem dóu vegna Covid-19 í Bandaríkjunum óbólusettir. Undanfarnar vikur hefur nýja kórónuveiran dreifst hratt í Bandaríkjunum og þá sérstaklega milli óbólusettra. Með meiri dreifingu veirunnar aukast líkur á stökkbreytingum, í einföldu máli sagt, og veirur geta stökkbreyst á þann veg að þær verði hættulegri.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið „Þegar konur ákveða að eignast börn þá eru þær strax búnar að fórna líkamanum sínum“ Lífið Hver er maðurinn? Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Tískan vopnið í keppni gegn krabbameini Tíska og hönnun Fleiri fréttir Sjóðandi hiti á klúbbnum á föstudag Varð að svara einni spurningu rétt til að fá eina milljón Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Stjörnulífið: Á rassinum með ref „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar „Þegar konur ákveða að eignast börn þá eru þær strax búnar að fórna líkamanum sínum“ Þriggja daga leikhús fáránleikans Krakkatía vikunnar: Hundar, kettir og eldingar Hver er maðurinn? Tók með sér leynihráefnið, Camembert-brennivín Salurinn fylltist í þrígang á fimmtíu ára afmælistónleikum Laufey „splittaði G-inu“ á tónleikum í Dublin „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Gimpið í Pulp Fiction er látið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Frekari skakkaföll í leikhúsunum Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026 Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Fimm hlutu bókmenntaverðlaun kvenna og kvára Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Apinn að vaxa upp úr apabangsanum Sjá meira