Manúela komst að því að snekkjulíf væri ekki málið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. ágúst 2021 13:43 Manúela í stemmningspósu í upphafi siglingar. Þegar leið á breyttist gleðin í ógleði. @manuelaosk Manúela Ósk og Eiður Birgisson njóta lífsins til hins ítrasta á Tenerife þessa dagana. Parið tók flottan bát á leigu í morgun þar sem Manúela var minnt á það að hún verður eins og svo margir sjóveik.
Fjöldi Íslendinga hefur notið sólarinnar á Tenerife undanfarnar vikur. Þar liggur næturlífið niðri á næturnar og takmarkanir eru á því hve margir geta setið saman á veitingastöðum. En annars leikur lífið við fólk á ströndinni, í sundlaugunum og skemmtigörðum. Manúela, sem er með 55 þúsund fylgjendur á Instagram, hefur notað tímann í sólinni til að svara spurningum fylgjenda sinna. Manúela segist þau hafa farið í Covid-próf áður en þau fóru utan en aðeins þurft að sýna það á hótelinu þar sem þau gista. Þá frumsýndi Manúela nýtt bikiní og upplýsti að elskhuginn hefði keypt settið á sig í vefverslun. Hann gæfi þó ekki upp hvar. Þá kemur fram að Eiður er konungur pabbabrandaranna. View this post on Instagram A post shared by M A N U (@manuelaosk) Margan hefur dreymt um að leigja sér snekkju á suðrænum slóðum og létu Eiður og Manúela þann draum rætast í morgun. Eftir nokkrar mínútur af siglingu upplýsir Eiður að Manúela hafi spurt áhugasöm hvort þau gætu ekki bara leigt bátinn allan daginn. Sú löngun átti eftir að breytast snögglega því Manúela greinir frá því að langstærstan hluta siglingarinnar hafi hún því miður verið sjóveik. „Líf á sjónum er ekki fyrir mig kæru vinir,“ segir Manúela og eflaust tengir margur Íslendingurinn við það. Hvort sem er siglingu í heitu loftslagi eða í borð um Baldri, Herjólfi, á leið á Hornstrandir, út í Grímsey eða lengri siglingu með Norrænu. Svo ekki sé talað um margan sjómanninn sem heldur til veiða þrátt fyrir að losna aldrei við bölvaða sjóveikina.
Íslendingar erlendis Kanaríeyjar Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Diljá Mist skilin Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Diljá Mist skilin Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Sjá meira