Lífið

Witcher-leikarar komnir til landsins

Samúel Karl Ólason skrifar
Þættirnir erru á vegum Netflix.
Þættirnir erru á vegum Netflix. Getty

Tökur fyrir nýja þáttaröð í söguheimi Witcher fara fram á Íslandi um þessar mundir. Þættirnir, sem eru á vegum Netflix, kallast Witcher: Blood Origin og gerast hundruðum ára á undan bókunum eftir Andrzej Sapkowski, tölvuleikjunum og þáttunum vinsælu sem þegar hafa litið dagsins ljós.

Helstu leikarar þáttanna eru þau Michelle Yeoh, Laurence O‘Fuarain og Sophia Brown.

Bæði O‘Fuarain og Brown eru komin til Íslands, miðað við færslur þeirra í Story á Instagram.

Samkvæmt Redanian Intelligence, sem er vefur sem fjallar sérstaklega um sjónvarpsþættina í söguheimi Witcher, eiga tökurnar að hefjast í byrjun ágúst.

Leikararnir hafa sagt frá því að þau séu á Íslandi á Instagram.

Fyrir þá sem ekki vita, þá gerast Witcher-bækurnar í söguheimi þar sem nokkrar víddir skullu saman. Við það strönduðu allskonar skrímsli, menn, dvergar, álfar og alls kyns verur saman í einum heimi með tilheyrandi deilum og átökum.

Witcher er nafn sérstakra stríðsmanna sem voru skapaðir til að fella ill skrímsli.

Blood Origin munu gerast um 1.200 árum fyrir sögur Sapkowski og fjalla um uppruna þessara stríðsmanna og það þegar víddirnar skullu saman.

Fyrr í þessum mánuði var auglýst eftir aukaleikurum fyrir verkefni tengt Netflix á Facebooksíðu íbúa Hellu. Þá kom fram að tökur aukaleikara færu fram 5. til 7. ágúst.

Áhugasamir netverjar hafa talið um nokkuð skeið að þættirnir yrðu að hluta til teknir upp á Íslandi. Það var eftir að Declan de Barra, höfundur þáttanna, og leikstjórarnir Sarah O'Gorman og Vicky Jewson birtu fjölmargar myndir af Íslandi á Instagram fyrr í sumar.


Tengdar fréttir

Sagði sig frá Witcher vegna Ver­búðarinnar

Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson sagði sig frá Netflix-þáttunum The Witcher vegna framleiðslu á nýjum íslenskum þáttum, Verbúðinni. Björn Hlynur sló í gegn í hlutverki Eist í fyrstu seríu þáttanna en til stóð að hann léti sjá sig í annarri seríunni en ekkert verður úr því.

Sjáðu fyrstu stikluna úr annarri seríu The Witcher

Fyrsta smástiklan fyrir aðra seríu Netflix-þáttanna The Witcher er komin í loftið. Nú eru bara fimm mánuðir í að þættirnir komi út og er því nær tveggja ára bið eftir annarri seríu lokið en fyrsta sería þáttanna fór í loftið í desember 2019.

Vinsælasta efni Netflix á árinu

Netflix hefur gefið út hvað var vinsælasta efnið á veitunni árið 2019. Kvikmyndin Murder Mystery með Adam Sandler og Jennifer Aniston virðist hafa notið mikilla vinsælda á árinu.

Witcher 3: Einstakt ævintýri

Að spila Geralt of Rivia, sem er stökkbreyttur maður sem flakkar um heiminn og gengur frá skrímslum fyrir peninga, er einstök upplifun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.