Innlent

Ástandsskoðun fasteigna ekki síður hagsmunir seljenda en kaupenda

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ragnar Ómarsson formaður Matsmannafélags Íslands segir félagið í áraraðir hafa bent á mikilvægi þess að festa í lög að ástandsskýrslur fylgi söluyfirlitum fasteigna.
Ragnar Ómarsson formaður Matsmannafélags Íslands segir félagið í áraraðir hafa bent á mikilvægi þess að festa í lög að ástandsskýrslur fylgi söluyfirlitum fasteigna. Vísir

Formaður Matsmannafélags Íslands segir félagið hafa barist fyrir að ástandsskýrslur gerðar af fagfólki fylgi söluyfirlitum allra íbúðarfasteigna. Slíkt sé til hagsbóta fyrir alla. Þingsályktunartillaga þess efnis var lögð í fimmta sinn fyrir Alþingi í vor og ráðherra falið að undirbúa lagagfrumvarp.

Fram kom í fréttum í gær að gallamálum í fasteignaviðskiptum hefur snarfjölgað síðustu misseri. Seljendur taki síður tilboð sem geri fyrirvara um ástandsskoðun fasteigna og kaupendur meðvitaðri en áður um rétt sinn.

Ragnar Ómarsson formaður Matsmannafélags Íslands segir félagið í áraraðir hafa bent á mikilvægi þess að festa í lög að ástandsskýrslur fylgi söluyfirlitum fasteigna.

„Þetta hefur verið eitt af stærri málum félagsins um 20 ára skeið. Við höfum reynt að koma okkar skoðunum á framfæri við opinbera aðila. Við teljum réttast að fyrir liggi ástandsskoðun fasteignar frá  aðila sem hefur til þess þekkingu og kunnáttu sem metur ástand fasteignar sem á að selja og skráir í skýrslu þannig að ástand eignar sé öllum kunn þegar að sölu kemur,“ segir Ragnar. 

Matsmannafélag Íslands undirbúi að samræma vinnubrögð þeirra sem taka út fasteignir.

„Skilyrði slíkra ástandsskoðanna yrði að sjálfsögðu að festa í lög og reglugerð af hálfu hins opinbera,“ segir Ragnar. 

Þingsályktunartillaga þess efnis var samþykkt á Alþingi í vor en þar er iðnaðarráðherra falið að undirbúa lagafrumvarp sem feli í sér að ástandsskýrslur gerðar af óháðu fagfólki fylgi söluyfirlitum alls íbúðafasteigna . Ragnar segir að frá 2004 hafi vilji Alþingis verið í þessa átt en málið einhvern veginn ekki náð lengra fyrr en í vor.

„Ég geri þá ráð fyrir því að eftir kosningar undirbúi ráðherra löggjöf fyrir slíkt,“ segir Ragnar.

Slík löggjöf sé til hagsbóta fyrir seljendur, kaupendur, tryggingarfélög og lánastofnanir .

„Þetta er í raun og veru hagsmunamál allra sem koma að sölu fasteigna. Ástandsskoðun er trygging fyrir seljanda ekki síður en kaupanda. Annars er seljandi í þeirri stöðu, ef upp koma gallar eftir sölu, að hann þarf að bæta fyrir gallana.  Það hefur ítrekað verið niðurstaða þeirra mála sem hafa komið til kasta dómstóla,“ segir Ragnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×