Lífið

Vilja 18,5 milljónir frá Dua Lipa vegna myndar á Instagram

Samúel Karl Ólason skrifar
Söngkonan Dua Lipa nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir.
Söngkonan Dua Lipa nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. EPA/DAN HIMBRECHTS

Fyrirtæki hefur höfðað mál gegn bresku tónlistarkonunni Dua Lipa vegna myndar sem hún birti á Instagram. Myndin var tekin af svokölluðum paparassa, ljósmyndara sem tekur myndir af frægu fólki og eltir það jafnvel, á flugvelli þar sem hún stóð í röð.

Myndina birti hún á Instagram í febrúar 2019, nokkrum dögum eftir að hún var tekin. Í færslunni við myndina grínaðist Lipa með hattinn sem hún var með á höfðinu, samkvæmt frétt BBC. Hún eyddi myndinni svo seinna meir.

Forsvarsmenn fyrirtækisins Integral Images, sem á höfundarrétt myndarinnar, segja Lipa hafa grætt á birtingu myndarinnar, vegna þess að hún notar Instagramsíðu sína til að auglýsa tónlist sína, og fara fram á 150 þúsund dala skaðabætur.

Lauslega reiknað samsvarar það um 18,5 milljónum króna.

Áhugasamir geta lesið lögsóknina sjálfa hér.

Í umfjöllun Forbes segir að ljósmyndarar og fyrirtæki sem eiga myndir af þeim fari reglulega í hart við frægt fólk. Þar á meðal eru Jennifer Lopez, Khloe Kardashian, 50 Cent, Jessica Simpson, Liam Hemsworth, Ariana Grande, Justin Bieber og Gigi Hadid.

Það virðist gerast oftar samhliða því að virði mynda paparassa hafi lækkað í verði og virði færsla á samfélagsmiðlum hafi hækkað gífurlega. Hingað til hafi mál sem þessi verið á gráu svæði í Bandaríkjunum, samkvæmt Forbes. Ljósmyndarar eigi réttinn af þeirra myndum en frægt fólk geti átt rétt á notkun nafns þeirra og mynda og ráðið hvernig þær eru notaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.