Guðrún hætt og engin kona þjálfari í efstu deild Sindri Sverrisson skrifar 1. júlí 2021 11:46 Guðrún Ósk Ámundadóttir skilaði bikarmeistaratitli í Borgarnes. Titli sem Skallagrímur heldur enn þar sem að ekki hefur tekist að ljúka bikarkeppni í körfubolta í ár né í fyrra, vegna kórónuveirufaraldursins. vísir/Daníel Guðrún Ósk Ámundadóttir er hætt sem þjálfari ríkjandi bikarmeistara Skallagríms í körfubolta kvenna. Þar með er sem stendur engin kona aðalþjálfari í efstu deild í körfubolta.
Áður hafði Ólöf Helga Pálsdóttir hætt eftir að hafa stýrt Grindavík upp í efstu deild en við starfi hennar tók Þorleifur Ólafsson og gerði samning til þriggja ára. Skallagrímur hefur aftur á móti ekki tilkynnt um arftaka Guðrúnar. Undir stjórn Guðrúnar endaði Skallagrímur í 6. sæti af átta liðum í Dominos-deildinni í vetur, með 16 stig líkt og Breiðablik sem endaði sæti ofar. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Guðrún það ógleymanlegt að hafa tekið þátt í að endurreisa kvennalið í Borgarnesi og skila bikarmeistaratitli í heimabæinn sinn, eins og hún gerði árið 2019. Á næstu leiktíð verði hún hins vegar meðal áhorfenda, í fyrsta sinn í tuttugu ár. „Í síðustu viku tók ég þá erfiðu ákvörðun að gefa ekki kost á mér sem þjálfari kvennaliðs Skallagríms fyrir næsta tímabil. Það verður skrítin tilfinning að taka þátt sem áhorfandi á pöllunum í fyrsta sinn í tæp 20 ár,“ skrifaði Guðrún og bætti við: „Síðustu ár hafa átt sérstakan stað í mínu hjarta, fyrst sem leikmaður og síðar sem aðalþjálfari liðsins. Að hafa tekið þátt í að endurreisa kvennalið í Borgarnesi og skila bikarmeistaratitli heim er ógleymanleg upplifun. Ég vil þakka öllum leikmönnum og stuðningsmönnum fyrir frábæran tíma ásamt stjórn Skallagríms fyrir það traust sem þau hafa sýnt mér. Takk fyrir mig og áfram Skallagrímur!!“
Dominos-deild kvenna Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira