Matur

BBQ kóngurinn: „Uppáhalds ódýri nautavöðvinn minn“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Grillmeistarinn Alfreð Fannar Björnsson sýnir hvernig hann framreiðir ekta Skirt-steik. 
Grillmeistarinn Alfreð Fannar Björnsson sýnir hvernig hann framreiðir ekta Skirt-steik.  Skjáskot

Í þáttunum BBQ kóngurinn sem sýndir voru á Stöð 2 sýnir grillmeistarinn Alfreð Fannar Björnsson hvers hann er megnugur með grillspaðann að vopni.

Í fjórða þættinum galdrar hann fram ekta Skirt-steik sem hann segir jafnframt vera uppáhalds ódýra nautavöðvann sinn. 

Hér er hægt að nálgast klippu úr þættinum og fyrir neðan má sjá uppskriftina og aðferð.

Verði ykkur að góðu!

Klippa: BBQ kóngurinn - Skirt-steik

Skirt-steik

  • Steik
    • 250 g skirt-steik (hægt að panta hjá Kjötkompaníinu)
    • Vorlaukur
    • Steikt hvítlaukskurl
    • Sesamfræ
  • Marinering
    • 50 ml soja
    • 20 ml olía
    • Safi úr einni límónu
    • ½ dl fínt söxuð steinselja
    • ½ fínsaxaður rauður chilli
  • Aðferð
  1. Setjið kjötið í poka og setjið soja, olíu, límónusafa, steinselju og chilli í skál, blandið vel saman og hellið í pokann. Marinerið í tvo klukkutíma.
  2. Kyndið grillið í 300 gráður.
  3. Grillið í 30 sekúndur á hlið á beinum hita þar sem þetta er rosalega þunn steik. Hvílið í fimm mínútur.
  4. Saxið hvítlauk smátt og djúpsteikið þar til hann er stökkur. Þerrið á eldhúspappír.
  5. Skerið kjötið í þunnar sneiðar og leggið á fallegt viðarbretti eða disk. Skreytið með þunnt skornum vorlauk ásamt hvítlaukskurli og sesamfræjum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkrar girnilegar uppskriftir úr fyrri þáttum en fyrir áhugasama er hægt að nálgasta alla fyrri þætti BBQ kóngsins á Stöð 2+.

Úrbeinað og fyllt lambalæri

Beikonvafinn bjórdósaborgari



Tengdar fréttir

BBQ kóngurinn: Reykt Texas-kalkúnabringa með BBQ-sinnepssósu

„Þessi er algjört æði. Auðvitað er ekki nauðsynlegt að reykja bringuna en ég mæli eindregið með því. Ef ég á afgang sneiði ég bringuna þunnt niður í álegg sem er fullkomið á samlokur,“ segir grillmeistarinn Alfreð Fannar Björnsson í sjónvarpsþættinum BBQ-kóngurinn sem sýndur var á Stöð 2 nú fyrr í vetur. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.