Lífið

Stjörnu­lífið: Þyrlu­skíða­ferð af dýrari gerðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf nóg að gera hjá stjörnunum. 
Alltaf nóg að gera hjá stjörnunum. 

Ferðlög erlendis hafa ekki verið í umræðunni undanfarna 14 mánuði eða svo. Íslendingar halda áfram að ferðast innanlands og gera það með stæl eins og Stjörnulíf vikunnar gefur til kynna.

En sumir eru reyndar að gera góða hluti erlendis og má þar einna helst nefna Rúrik Gíslason sem er gjörsamlega að fara á kostum í þýsku dansþáttunum Let´s Dance en hann fékk fullt hús stiga í þættinum á föstudagskvöldið. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra nældi sér í verðlaun í firmakeppni Fáks um helgina.  Faðir hennar Sigurbjörn Magnússon nældi sér líka í verðlaun. 

Sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdóttir gerði vel í tennis, vann silfur í tvíliðaleik kvenna á Íslandsmóti um helgina, með makkernum sínum Ólöfu Loftsdóttur dýralækni. 

Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir með lokaorðin fyrir aðgerð á hné. Hún sleit krossband á dögunum. 

 Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson naut sólarinnar. 

 Vilhelm Neto með ljósmyndaleiksigur þar sem hann túlkar alla pabba landsins á vorin. 

Nökkvi Fjalar og starfsmenn Swipe Media nutu sín á Hótel Kríunes um helgina og fóru í vinsæla leikinn Murder Mistery.

 Söngsysturnar Svala Björgvins og Jóhanna Guðrún.

Simmi Vill fór um borð í flugvél og sveif yfir eldgosið.

 Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson óska öllum gleðilegt sumar. 

Garðar Gunnlaugsson fagnaði afmæli sínu um helgina og fékk meðal annars Jökul Júlíusson, úr Kaleo, til að taka lagið fyrir nokkra gesti. 

 Camilla Rut lyfti sér upp um helgina. Eitthvað sem hún gerir sjaldan. 

„Aðeins sex fleiri mánudagar fram að júní,“ skrifar Sunneva Einars á Instagram og birtir í leiðinni fallegar myndir. 

 Crossfit-stjarnan Katrín Tanja skellti sér á veiðar. 

Rapparinn Flóni, Friðrik Róbertsson, og stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson nutu lífsins í Siglfirsku Ölpunum um helgina, þar sem þeim er skutlað upp á fjall með þyrlu til þess eins að skíða aftur niður. Villi var sannarlega í góðum félagskap.

„Minn líkami, og mínar reglur,“ skrifar Svala Björgvins við mynd á Instagram. 

Athafnarkonan og samfélagsmiðlastjarnan Tanja Ýr í toppmálum á Miami í Bandaríkjunum. 

Ásdís Rán bíður góðan dag frá Búlgaríu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.