Veik von um að kafbáturinn finnist í tæka tíð Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 24. apríl 2021 08:41 Indónesíski herinn hefur notið liðsinnis fjölda erlendra ríkja við leitina að kafbátnum. EPA-EFE/MADE NAGI Dvínandi líkur eru taldar á því að kafbátur indónesíska sjóhersins, sem hvarf úti fyrir ströndum Balí, finnist í tæka tíð svo unnt sé að bjarga áhöfninni áður en súrefni verður á þrotum. 53 eru í áhöfninni en áætlað er að súrefni verði á þrotum nú að morgni laugardags að staðartíma.
Víðtæk leit stendur yfir að kafbátnum en auk indónesíska hersins og annarra viðbragðsaðila hafa Bandaríkjamenn og Ástralir sent skip og þyrlur aðstoðar við leitina. Þá er liðsauki frá Singapúr og Indlandi jafnframt væntanlegur samkvæmt frétt Reuters en Malasía, Frakkland og Þýskaland hafa jafnframt boðið fram aðstoð. „Möguleikann á því að kafbáturinn hafi farið niður fyrir hámarksdýpið sem hann þolir, sem leiðir til þess að hann fellur saman, verður að taka með inn í reikninginn,“ segir Collin Koh, sérfræðingur við Stofnun varnar- og öryggismálafræða (IDSS). „Svo er möguleiki að súrefnið sé þegar á þrotum,“ bætir hann við. Hann telur það vera bjartsýni að súrefnið endist í 72 klukkustundir líkt og talað hafi verið um, í ljósi þess að kafbáturinn hefur takmarkaða getu til að framleiða súrefni í ljósi hefðbundinnar orkuframleiðslu kafbátsins. Indónesíski herinn sagðist í fyrrakvöld hafa fundið merki um fyrirbæri á fimmtíu til hundrað metra dýpi og hefði sent skip með hljóðsjá til þess að kanna hvort að þar sé á ferðinni KRI Nanggala 402-kafbáturinn sem hefur verið saknað frá því á miðvikudag.
Indónesía Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira