Lífið

Ein­stök íbúð, ein­býli í Skerja­firðinum og 250 fer­metra pent­hou­se í tíundu þátta­röðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sindri fer af stað með Heimsókn í tíunda sinn. 
Sindri fer af stað með Heimsókn í tíunda sinn. 

150. þátturinn af Heimsókn með Sindra Sindrasyni fer í loftið á Stöð 2 annað kvöld. Um er að ræða tíundu þáttaröðina af þessum vinsælu þáttum þar sem áhorfendur fá að sjá falleg heimili Íslendinga.

Í þættinum á morgun fá áhorfendur að sjá fyrir og eftir breytingar hjá parinu Kára Sverrissyni og Ragnari Sigurðssyni sem tóku íbúð sína í gegn frá a-ö, íbúð sem er ólík öllum öðrum íbúðum.

Kári hefur sjálfur starfað töluvert fyrir Channel sem ljósmyndari og starfar Ragnar sem innanhússarkitekt.

Átta þættir verða í þessari þáttaröð og mun Sindri meðal annars skoða einstakt einbýlishús Önnu Möggu Jónsdóttur, fyrrverandi fegurðardrottning Íslands, sem býr í Skerjafirðinum.

Einnig fer Sindri í heimsókn í 250 fermetra penthouse íbúð og margt fleira.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.