Hannes sjálfkjörinn og nálgast tuttugu ára afmæli Sindri Sverrisson skrifar 4. mars 2021 14:31 Hannes S. Jónsson með stjórnarmönnum eftir ársþingið 2019. Ársþing KKÍ eru haldin á tveggja ára fresti. kki.is Hannes S. Jónsson er einn í framboði og því sjálfkjörinn sem formaður Körfuknattleikssambands Íslands. Ársþing KKÍ fer fram um aðra helgi.
Hannes tók við sem formaður af Ólafi Rafnssyni heitnum í maí 2006. Ljóst er að hann verður formaður í að minnsta kosti tvö ár til viðbótar, eða fjögur ár ef að tillaga um breytingar á lögum KKÍ verður samþykkt á þinginu. Það er samkvæmt tilmælum FIBA um að kjörtímabil sé fjögur ár. Hannes næði þá að sitja sem formaður í að minnsta kosti nítján ár, eða til 2025. Átta núverandi stjórnarmenn munu sitja áfram. Það eru þau Birna Lárusdóttir, Einar Karl Birgisson, Erlingur Hannesson, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, Guðni Hafsteinsson, Herbert Arnarson, Jón Bender og Lárus Blöndal. Ester Alda Sæmundsdóttir, sem verið hefur gjaldkeri, gefur hins vegar ekki kost á sér áfram. Nýr stjórnarmaður kemur því í hennar stað. Verði fyrrnefndar breytingar á lögum KKÍ samþykktar þarf nýr stjórnarmaður að vera löglærður og sinna formennsku nýrrar laganefndar, þar sem ekkert þeirra sem áfram sitja í stjórn er lögfræðimenntað. Skuldir lækkað um yfir 40 milljónir á þremur árum KKÍ hefur birt ársreikning sinn. Þar kemur fram að tekjur sambandsins á síðasta ári voru rúmar 178 milljónir króna en gjöld tæpar 160 milljónir. Skuldir KKÍ umfram eignir námu í lok árs 2017 um 55 milljónum króna. Þær voru 31,8 milljónir í lok árs 2019 en eru nú komnar niður í 13,6 milljónir króna. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 gerir ráð fyrir 8,6 milljóna króna hagnaði.
Körfubolti Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Sjá meira