Lífið

Snorri heillaði dómnefndina upp úr skónum í kólumbíska X-Factor

Stefán Árni Pálsson skrifar
Snorri kom til Kólumbíu fyrir fjórum árum.
Snorri kom til Kólumbíu fyrir fjórum árum.

Dalvíkingurinn Snorri Eldjárn Hauksson tekur þátt í kólumbíska X-Factor og virðist ætla standa sig vel til að byrja með eins og sést í myndbandi á YouTube en þættirnir byrjuðu seint á síðasta ári.

Í myndbandi sem sést á YouTube má heyra Snorra ræða við dómarana fjóra og er hann greinilega reiprennandi á spænsku.

„Ég kom til Kólumbíu til að taka þátt í X-Factor. Þótt ég sé íslenskur þá er ég hálfur Íslendingur og hálfur Kólumbíumaður og ég sé mig meira sem Kólumbíumann,“ sagði Snorri við dómnefndina.

„Ég kom fyrst hingað fyrir fjórum árum til þess að læra spænsku, það voru margar ástæður fyrir því að ég valdi Kólumbíu en númer eitt voru það konurnar. Og ég fann eina frá Cartagena og í dag er hún konan mín,“ segir Snorri og sýndi í leiðinni giftingarhringinn.

Byrjaður að kenna dómnefndinni íslensku

„Ég vissi að það væri brandari en hún sagði við mig: Það er bara eitt skilyrði ef ég á að giftast þér og það er að þú takir þátt í raunveruleikaþætti í Kólumbíu,“ segir Snorri en þá spyr konan í dómnefndinni: „raunveruleikaþætti eða X-Factor?“

„X-Factor. Það er draumur minn, augljóslega, að geta lifað af tónlistinni. Það er ástríða mín og í raun fann ég tónlistina að nýju hér í Kólumbíu. Ég hafði lagt tónlistina til hliðar, hún var bara orðin að áhugamáli. Ég kom til Kólumbíu og varð ástfanginn af taktinum hérna,“ segir Snorri.

Fyrirsögn klippunnar á YouTube er í raun: Íslendingurinn sem tók þátt í X-Factor og skildi alla eftir með opinn munninn. Snorri flutti lag á spænsku og heillaði dómnefndina upp úr skónum. Dómarinn lengst til hægri sagði eftir flutninginn að Snorri væri sannarlega með þennan x-factor sem verið væri að leita af.

Hann kenndi dómnefndinni að segja orðin nei og já á íslensku og þau svöruðu honum með einu stóru já-i til að koma Snorra áfram í næstu umferð.

Hér að neðan má sjá myndband úr þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.