Uppskriftir úr Kjötætur óskast: Hoisin önd og spagettí carbonara í veganútgáfu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. janúar 2021 17:30 Fanney Dóra Sigurjónsdóttir matreiðslumaður og í kokkalandsliðinu framreiddi veislumáltíð með Hoisin veganönd í ýmsum útgáfum og bökuðu blómkáli sem féll í góðan jarðveg hjá tilraunadýri heimilisins, Hlédísi Sveinsdóttur. Kjötætur óskast! Í þriðja þætti af Kjötætur óskast! heimsóttu fjórir matgæðingar fjölskyldurnar fjórar sem taka þátt í vegantilrauninni. Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 kl. 19.05 í kvöld.
Verkefni matgæðinganna var að veganvæða óskarétt hvers heimilis. Hér eru uppskriftir frá tveimur þeirra úr þættinum. Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, matreiðslumaður í Kokkalandsliðinu, heimsótti Hlédísi Sveinsdóttur verkefnastjóra á Akranesi, og dóttur hennar Sveindísi. Þær höfðu óskað eftir veganvæðingu á Hoisin önd í asískum pönnukökum. Frá tökumKjötætur óskast! UPPSKRIFT: Hoisin veganönd með bökuðu blómkáli í forrétt BAKAÐ BLÓMKÁL KRYDDBLANDA á blómkál: 2 msk sykur 4 msk kúmin 4 msk kóríander smá af salti HVÍTLAUKS AIOLI: veganmajónes hvítlaukur smá salt Blómkálið skorið í bita, velt upp úr olíu og kryddblöndunni. Bakað í ofni við meðalhita í ca. 15 mínútur. Borið fram með ferskum kóríander, fræjum ristuðum í sojasósu og hvítlauksaioli. Veisla! HOISIN VEGAN ÖND Veganönd (mætti lika nota ostrusveppi eða portobello sveppi, en hér var notuð Shredded Hoisin duck frá Lindu McCartney) Litlar asískar pönnukökur Grænmeti til að hafa í pönnukökunum - skorið í þunna strimla, t.d.: gúrkur hnúðkál gulrætur saxaður ferskur kóríander engifer hvítlaukur hoisin sósa sesamolía Léttsteikja hvítlauk og engifer í olíu, passa að brúnist ekki. Hella svo vænni slettu af hoisin sósu út á pönnuna og blanda vel saman við vegankjötið. Sletta slurk af sesamolíu yfir kjötið undir lokin. Hnetusósan: Hnetusmjör Sesamolía Sojasósa Smá sykur Límónusafi Veganöndin er síðan borin fram með hituðum asískum pönnukökum, þunnt sneiddu grænmeti, hnetusósunni og hoisin sósu. Auk þess benti Fanney Dóra á ýmsar leiðir til að nota hoisin veganöndina, til dæmis mætti sjóða núðlur og léttsteikja þær þvínæst með veganöndinni á pönnu ásamt hoisinsósu og bera fram með rifnum límónuberki. Kreista smá límónusafa yfir pönnuna. Guðrún Sóley heimsækir þátttakendur í þætti kvöldsins Carbonara í Kópavoginum Í þriðja þætti heimsótti einnig Guðrún Sóley Gestsdóttir þau Sigríði H. Kristjánsdóttur ástríðukokk og Sigurð Leifsson ástríðuveiðimann sem taka þátt í vegantilrauninni ásamt dóttur sinni Isabellu. Þau vildu eitthvað einfalt - veganvæðingu á Spagettí Carbonara. Þegar nánar er að gáð er sá réttur að jafnaði nánast eingöngu með dýraafurðum en Guðrún Sóley kunni að meta góða áskorun og veganvæddi réttinn á hugmyndaríkan hátt. Carbonara réttur UPPSKRIFT: Veganútgáfa af Spagettí Carbonara 1. 1 saxaður rauðlaukur sneiddir sveppir Svissa rauðlauk og steikja sveppi með tamarisósu. Sjóða pastað. 2. Feikonið Ýmsar leiðir eru til að útbúa staðgengil beikons. Í þessari uppskrift eru notuð 100 grömm af kókosflögum, kryddaðar með beikonkryddi og bakaðar í ofni við lágan hita í nokkrar mínútur. Þess í stað væri hægt að nota eggaldin, kúrbít eða hvaða grænmeti sem er fremur þétt í sér. Leggja það í maríneringu - eins og lengi þú hefur þolinmæði til - og krydda með reykjarlegi (liquid smoke), beikonkryddi eða reyktu paprikkukryddi. Baka það þvínæst í ofni til þurrka það og fá áferð sem er líkari beikoni. Sömuleiðis hægt að nota tófú eða hrísgrjónapappír. 3. Kasjúhnetu Carbonara sósa Carbonara réttur Leggið kasjúhnetur í bleyti í nokkra klukkutíma - eða setjið þær í sjóðandi vatn í nokkrar mínútur Setjið hneturnar í blandara með dálitlu af hnetuvatninu 2-3 hvítlauksrif eftir smekk salt og pipar slettu af Dijon sinnepi Setja soðið pastað út á pönnuna, blandið kasjúsósunni saman við og myljið síðan bakaðar kókosflögurnar yfir. Veganparmesan ostur rifinn yfir. Skreytt með steinselju. Borið fram með hvítlauksbrauði. HvítlauksbrauðKjötætur óskast! BÓNUSUPPSKRIFT af heimagerðum vegan “parmesan!” osti: Salt næringarger möndlur Mauka í matvinnsluvél Þriðji þáttur af “Kjötætur óskast! Vegan með Lóu Pind” er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld kl. 19:05. Í þessari fimm þátta seríu fylgist Lóa Pind Aldísardóttir með fjórum íslenskum fjölskyldum sem féllust á að taka þátt í fjögurra vikna vegan tilraun. Allar fjölskyldurnar skráðu mataræði sitt inn í Matarspor EFLU meðan á tilraun stóð. Auk þess var tekin ein samanburðarvika frá því fyrir tilraun, til að kanna hvort kolefnisspor fjölskyldnanna minnkar við að sneiða hjá öllum dýraafurðum. Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumaður er Ívar Kristján Ívarsson og klippingu annaðist Hrafn Jónsson. Framleitt af Lóa Production fyrir Stöð 2. Verkfræðistofan EFLA veitt ómetanlega aðstoð við kolefnisútreikninga þáttanna.
Uppskriftir Vegan Pastaréttir Kjötætur óskast! Tengdar fréttir Hnetusósan sem bjargaði Lóu Pind í vegantilraun „Þessar þrjár hnetusósur sem við kynntumst í annarri viku tilraunar, björguðu mér gjörsamlega í gegnum vegantilraunina,” segir Lóa Pind Aldísardóttir, leikstjóri þáttanna Kjötætur óskast! sem er á dagskrá Stöðvar 2 um þessar mundir. 24. janúar 2021 22:06 Vegan Tama thai: „Ég prufaði mig lengi áfram að reyna að líkja eftir þessum rétti“ „Ég hef verið vegan síðan ég tók þátt í veganúar 2016, rúmlega fimm ár núna,“ Valgerður Árnadóttir formaður Samtaka grænkera á Íslandi. 20. janúar 2021 12:31 Stjörnu-Sævar eyddi innan við tuttugu þúsund krónum í mat fyrir heilan mánuð „Það versta sem við gerum í umhverfismálum, finnst mér, er að henda mat,“ segir Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari. 17. janúar 2021 10:00 Með mikla magaverki á þriðja dagi vegan tilraunar Fyrsti dagurinn í vegantilraun gekk vonum framar hjá kúabændunum á Litla-Ármóti, en þau féllust á að taka þátt í sjónvarpsþáttunum Kjötætur óskast! sem eru nú í sýningu á Stöð 2. 16. janúar 2021 15:00 Mest lesið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Sykurlausar og dísætar smákökur Lífið Fleiri fréttir Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Sjá meira
Hnetusósan sem bjargaði Lóu Pind í vegantilraun „Þessar þrjár hnetusósur sem við kynntumst í annarri viku tilraunar, björguðu mér gjörsamlega í gegnum vegantilraunina,” segir Lóa Pind Aldísardóttir, leikstjóri þáttanna Kjötætur óskast! sem er á dagskrá Stöðvar 2 um þessar mundir. 24. janúar 2021 22:06
Vegan Tama thai: „Ég prufaði mig lengi áfram að reyna að líkja eftir þessum rétti“ „Ég hef verið vegan síðan ég tók þátt í veganúar 2016, rúmlega fimm ár núna,“ Valgerður Árnadóttir formaður Samtaka grænkera á Íslandi. 20. janúar 2021 12:31
Stjörnu-Sævar eyddi innan við tuttugu þúsund krónum í mat fyrir heilan mánuð „Það versta sem við gerum í umhverfismálum, finnst mér, er að henda mat,“ segir Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari. 17. janúar 2021 10:00
Með mikla magaverki á þriðja dagi vegan tilraunar Fyrsti dagurinn í vegantilraun gekk vonum framar hjá kúabændunum á Litla-Ármóti, en þau féllust á að taka þátt í sjónvarpsþáttunum Kjötætur óskast! sem eru nú í sýningu á Stöð 2. 16. janúar 2021 15:00