Lífið

Sýnir hvað hann fær greitt fyrir milljón áhorf á YouTube

Stefán Árni Pálsson skrifar
Erik Conover á nokkur myndbönd á YouTube á eru með milljónir áhorfa. 
Erik Conover á nokkur myndbönd á YouTube á eru með milljónir áhorfa. 

Stjörnufasteignasalinn Erik Conover birtir reglulega fasteignamyndbönd á YouTube síðu sinni þar sem farið er yfir eignir sem aðeins þeir frægu og ríku eiga efni á.

Aftur á móti í nýjasta myndbandi Conover sýnir hann hvað hann fær greitt fyrir milljón áhorf á rás sinni.

Myndbönd hans fara oft á tíðum vel yfir milljón í áhorf og vel það.

Í myndbandinu kemur í ljós að Conover fær rúmlega 2500 dollara greitt fyrir hverja milljón sem horfir á hans myndbönd. Eða því sem samsvarar 324 þúsund íslenskar krónur.

Í öðru myndbandi sem hann framleiddi á rás sinni fékk hann aðeins 1500 dollara fyrir hverja milljón en ástæðan fyrir því er að það heyrist í lagi í myndbandinu sem Conover hefur ekki réttinn að og því minnkar hagnaður hans umtalsvert.

Hér að neðan má sjá fyrirferð fasteignasalans vinsæla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.