Lífið

Systir Baracks Obama tekur þátt í dansþættinum með Rúrik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rúrik Gíslason fer af stað í tökur á þáttunum Let´s Dance 5. febrúar. 
Rúrik Gíslason fer af stað í tökur á þáttunum Let´s Dance 5. febrúar. 

Fótbolta- og athafnamaðurinn Rúrik Gíslason mun keppa í þýska dansþættinum Let‘s Dance. Þættirnir eru byggðir á bresku þáttunum Dancing with the Stars þáttunum, sem haldnir eru um heim allan.

Þættirnir hefjast á þýsku sjónvarpsstöðinni RTL í febrúar. Rúrik mætti í Brennsluna á FM957 í morgun og ræddi þátttöku sína í þáttunum og fríið í Brasilíu sem hann var í síðustu vikur með kærustunni sinni Nathalia Soliani.

„Það er yndislegt að vera þarna og allir mjög rólegir. Eini gallinn er að það er svolítið há glæpatíðni þarna og ég var til dæmis hvattur til að keyra yfir á rauðu ef ég væri á ferðinni um nótt,“ segir Rúrik um síðustu vikur í Brasilíu.

„Ég þori ekki að fara með það hvort þetta sé eitthvað bilaðislega hættulegt því ég hef aldrei lent í neinu. Þumalputtareglan hjá innfæddum var sú að keyra yfir á rauðu.“

Eins og áður segir keppir hann í dansþætti í Þýskalandi.

„Ég væri alveg tilbúinn að byrja æfa aðeins og fara yfir grunnsporin en við megum það ekki,“ segir Rúrik og bætir við að hann hafi alveg trú á því að það sé taktur í honum.

„Fyrsti mánuðurinn verður tekin upp og hefjast þær 5. febrúar. Þá verða bara svona hóptímar og ég hef ekki enn fengið dansfélaga. Svo bara viku fyrir fyrsta þáttinn í beinni útsendingu fær maður dansfélaga,“ segir Rúrik og bætir við að Íslendingar þekki kannski ekki marga sem taka þátt.

„Hálfsystir Baracks Obama er þarna og mér fannst það frekar áhugavert. Annars held ég að þýskt fólk sé ekkert sérlega vinsælt hér á Íslandi.“

Maya Soetoro-Ng er hálfsystir Baracks Obama sem var 44. forseti Bandaríkjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.