Lífið

Stjörnulífið: Einkaþota heim og skíðin tekin fram

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf nóg um að vera á samfélagsmiðlunum. 
Alltaf nóg um að vera á samfélagsmiðlunum. 

Nú er árið 2021 farið af stað af fullu og búið að aflétta að einhverju leyti samkomutakmarkarnir og lífið gæti orðið eðlilegt á næstu mánuðum.

Íslendingar halda áfram að gera gott úr stöðunni og greina frá því á samfélagsmiðlum.

Leikkonan Hera Hilmarsdóttir birti fallega mynd eftir Jónatan Grétarsson og þakkaði í leiðinni fyrir afmæliskveðjurnar í síðasta mánuði.

Leik- og söngkonan Þórunn Erna Clausen rifjar upp daginn þegar dóttir hennar kom í heiminn fyrir ári. 

„65 dagar af hreinni ást með elsku Hrefnu Margréti okkar .... nei meira að segja 366 dagar... það var hlaupár. Hún er prakkari, uppátækjasöm, sefur eins og engill (sem við foreldrarnir þökkum svo innilega fyrir) , stríðnispúki, knúsamús, með lítið hjarta, glöð og einstaklega brosmild, ákveðin og jú smá þrjósk. Hún hefur svo sannarlega lýst upp tilveru mína á þessu ári og ég hlakka til hverrar stundar með henni,“ skrifar Þórunn við myndir sem hún birti á Instagram.

Móeiður Lárusdóttir birti fallega mynd af þeim mæðgum í leðurjökkum. 

Rúrik Gíslason nýtur lífsins í Brasilíu.

Manuela Ósk skellti sér á Langjökul um helgina. 

Ásdís Rán skellti sér á skíði með dóttur sinni í Búlgaríu og skemmti sér örugglega vel, eins og segir í laginu.

Ásdís birti einnig fallega mynd af sér og móður sinni frá því um jólin. Ekki laust við að svipur sé með þeim mæðgum.

Samfélagsmiðlastjarnan Binni Löve fór í skíðaferð til Akureyrar og endurlék hópurinn fræga mynd frá Óskarnum á sínum tíma. 

 María Birta og Elli Egils falleg saman á paramynd á Instagram. 

Friðrik Ómar skellti sér út að borða á Strikinu á Akureyri með Svölu Björgvins vinkonu sinni og Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni, unnusta hennar.

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, bauð vinum sínum heim til að horfa á leik Liverpool og Manchester United í gær. Þrír United menn og einn Poolari.

Sunneva Einarsdóttir klikkaði ekki á myndinni í þessari viku.

Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson náði að hlaða battaríin hér á landi í nokkrar vikur áður en hann skellti sér aftur til Moskvu þar sem hann leikur með CSKA Moskvu. Auðvitað fór hann með einkaþotu aftur heim. 

 Kristbjörg Jónasdóttir og Aron Einar Gunnarsson njóta greinilega lífsins í hitanum í Katar. 

 Svala Björgvins og Kristján Einar nutu sín á Húsavík. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.