Lífið

Situr einn að World Class í Laugum þökk sé mömmu og pabba

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björn Boði getur farið í ræktina. 
Björn Boði getur farið í ræktina. 

Björn Boði Björnsson er sonur Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur sem eiga og reka World Class. Það kemur sér vel fyrir Björn Boða. 

Hann greinir frá því á TikTok að hann hafi getað skellt sér í ræktina, annað en aðrir Íslendingar.

Eins og alþjóð veit eru allar líkamsræktarstöðvar landsins lokaðar vegna samkomubanns sem sett var á í kjölfar kórónufaraldsins sem veldur Covid-19 sjúkdómnum.

„Þegar líkamsræktarstöðvar eru lokaðar vegna kórónuveirunnar en foreldrar þínir eiga líkamsræktarstöð,“ segir Björn Boði í færslunni á Tik Tok.

Þar sést hann kveikja ljósin í Laugum, mynda tóm rýmin og taka á lóðunum. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.