Lífið samstarf

Zolo & co lítið og fallegt fjölskyldufyrirtæki í Keflavík

Zolo & Co
Fallegir ilmolíulampar frá Zolo & co í Keflavík
Fallegir ilmolíulampar frá Zolo & co í Keflavík

Öðruvísi gjafavörur og ilmur fyrir heimilið er meðal þess sem fæst í versluninni Zolo & co í Keflavík, lítið fjölskyldufyrirtæki sem byrjaði í stofunni heima.

„Við erum með landsins mesta úrval af ilmolíulömpum og olíum. Auk þess erum við með einstaka og öðruvísi gjafavöru. Við leggjum áherslu á að vera með vörur sem fást ekki hvar sem er, enda fáum við rosa mikið af fólki allsstaðar að af landinu til okkar," segir Sunna Dís, verslunarstjóri Zolo & co Hafnargötu 23 í Keflavík.

„Þetta var nú bara þannig að mamma mín byrjaði með ilmolíulampana heima hjá sér í stofunni fyrir þó nokkrum árum síðan en þá komu viðskiptavinirnir bara heim í kósýheit til hennar að velja sér lampa og ilmi, fólki fannst það bara voða „næs“. Einnig vorum við í nokkur ár með alla lampana til sýnis og í sölu á Flughótelinu í Keflavík á Ljósanótt. Það vakti mikla lukku meðal fólks og út frá því kom hugmyndin um að opna okkar eigin verslun í fallega bænum okkar og hér höfum við verið síðan í mars 2017," segir Sunna Dís.

„Við ætluðum að einblína mest á ilmolíulampana en í dag er Zolo bara svo miklu meira en ilmolíulampar. Við elskum öðruvísi hluti og erum með bæði smáa og alveg upp í risa stóra, sem þú sérð ekki á hverju heimili! Við erum eiginlega orðin svolítið þekkt fyrir það, sem dæmi má nefna ugluborð, strútsljós, stærðarinnar gírfaffalampa, bleika brosandi flóðhesta, apa í geimfarabúningum, stór glitrandi andlit á vegg, skemmtilega andlitsblómapotta, fyndna aplampa og allskonar skemmtilegt sem lífgar svo sannarlega upp á heimilið. Og það sem gerir þetta enn skemmtilegra er að við pöntum oftast mjög fáa svona sérstaka hluti, svo þeir sem kaupa sér þá eru ekki að fara sjá þá á mikið fleiri stöðum en heima hjá sér."



„Við erum líka með æðislegar organic húð-og brúnkulínur, tannhvíttunarvörur og maska, það er nefnilega þannig að allt sem við erum með í versluninni okkar er eitthvað sem við viljum sjálf eiga eða notum. Svo er bara svo gaman að vera vinna í svona fallegu og ilmandi umhverfi alla daga," segir Sunna Dís. 

„Svo má ekki gleyma frönsku ljósunum okkar sem hafa svo sannarlega slegið í gegn! Þau eru einstaklega falleg, lýsingin frá þeim minnir svolítið á sólina, hreint út sagt bara eins og listaverk að horfa á þau! 

Við fjölskyldan munum standa vaktina í búðinni 22. desember frá klukkan 11 til 22, á Þorkláksmessu frá  klukkan 11 til 23  og á aðfangadag frá 10 til 12."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.