Lífið

Fallegur flutningur Selmu Björns og Vignis á laginu River

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Selma Björns og Vignir Snær komu fram á aðventukvöldi á vegum Ljóssins.
Selma Björns og Vignir Snær komu fram á aðventukvöldi á vegum Ljóssins. Skjáskot

Selma Björnsdóttir og Vignir Snær Vigfússon komu saman fram á aðventukvöldi Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.

Í ár var viðburðurinn í beinni útsendingu í streymi á samfélagsmiðlum Ljóssins. Selma og Vignir tóku meðal annars Joni Mitchel lagið River.

„Viðburðurinn gekk mjög vel og viðbrögðin við umfjölluninni hafa meðal annars verið að fólk sem nýlega hefur greinst hefur haft samband,“ segir Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Ljóssins um viðburðinn. 

Flutning Selmu og Vignis má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: River - Selma Björns og Vignir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.