Verkefnið er framhald verkefnis sem hófst í sumar og átti að fara fram í þrjú skipti í plötuverslunum Reykjavíkur. Vegna COVID-19 var einungis hægt að halda viðburðinn í eitt skipti sem þó gafst einstaklega vel.
Nú er viðburðurinn færður yfir á netið. Hugmyndin að baki verkefnisins er að styðja við bakið á plötuverslunum á einkar erfiðum tímum og fagna mikilvægu hlutverki þeirra í tónlistarborginni. Á þessum tímum og rétt fyrir jólin er fólki bent á að kaupa íslenska tónlist í jólapakkann og er það gert til að styðja við bæði plötuverslanirnar og okkar frábæra tónlistarfólk.

Dagskráin
Dagskráin er alls ekki af verri endanum en hana má sjá hér að neðan:
- Smekkleysa – 15. des kl 21:00
- Tendra
- Kristín Anna
- Lovísa Rut og Benni Reynis spjalla um íslenskar útgáfur ársins.
- 12 Tónar – 17. des kl 21:00
- Gróa
- Skoffín
- Elísabet Indra og Andrea Jóns spjalla um íslenskar útgáfur ársins.
- Reykjavík Record Shop – 21. des kl 21:00
- Hist og
- Markús
- Óli Dóri og Heiða Eiríks spjalla um íslenskar útgáfur ársins.
- Lucky Records – 22. des kl 21:00
- Ingibjörg Turchi
- Dalalæða
- Steinar Fjeldsted og Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló) spjalla um íslenskar útgáfur ársins.
Verkefnið, sem er samstarf Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og plötuverslana í Reykjavík, er stutt af Jólaborginni, FHF, FÍH og STEF.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.