Land Rover Defender Bíll ársins hjá Top Gear Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 5. desember 2020 07:01 Land Rover Defender var valinn bíll ársins hjá Top Gear. Land Rover Defender stóð uppi sem sigurvegari í vali Top Gear á bíl ársins. Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL.
Hinn óstöðvandi kraftur ársins Auk aðalbikarsins hlaut Defender aukaverðlaunin Hinn óstöðvandi kraftur ársins (The Unstoppable Force of the Year) fyrir sterklega og vel heppnaða hönnun og smíði. Eiginleikar Defender skipa honum á bekk með öflugustu og hæfustu bílunum í sínum flokki á markaðnum þegar tekist er á við krefjandi aðstæður á ferðalögum utan alfaraleiða. „Þetta er bíllinn sem fer allt,“ sagði kynnir Top Gear og til að sýna lesendum tímarits Top Gear og áhorfendum myndbands sem dómnefndin gerði til að sýna styrkleika bílsins voru þrír Defender hengdir í röð upp í krana þar sem sá efsti á línunni hélt hinum tveimur neðar í línunni. Sterkbyggðasti og getumesti bíllinn Dómnefnd Top Gear var á einu máli um að hinn nýi Defender sé einn öflugasti bíllinn á götunni í dag og í raun „snilldararftaki upphaflegu goðsagnarinnar um Land Rover á 21. öldunni. Við erum búin að aka báðum útgáfum Defender við mjög erfiðar aðstæður í eyðimörkinni í Namibíu, með mismunandi búnaði og vélum, og allar gerðirnar stóðu sig alveg frábærlega við hvaða aðstæður sem er,“ sagði Jack Rix, ritstjóri tímarits Top Gear. Hann sagði ýmsa halda því fram að nýi bíllinn verði ekki nýttur í sama mæli í t.d. landbúnaði eins og gamli góði Land Roverinn gerði, þar sem hann var vissulega á heimavelli um allan heim. Bíll ársins að mati Top Gear, Landrover Defender. „Það þýðir þó ekki að hann henti ekki jafn vel og eldri gerðin vegna þess að þetta er sterkbyggðasti og getumesti bíll sem við höfum nokkru sinni prófað,“ sagði Rix ennfremur. Rúsínan í pylsuendanum er síðan að einstök þægindi og aksturseiginleikar Defender gera hann jafnframt að frábærum fjölskyldubíl í borgarakstrinum og til tómstundaferðalaga til bæja, sveita og fjalla. Hann getur allt.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Innlent Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Erlent