Of jólalegt en hugsanlega besta lagið hingað til Ritstjórn Albumm skrifar 4. desember 2020 20:00 Nýtt lag Laminar Flow heitir Summer Fling. Hljómsveitin Laminar Flow var að senda frá sér lagið Summer Fling en lagið var samið í apríl á þessu ári þegar Hrafnkell söngvari/gítarleikari sveitarinnar var að prófa sig áfram með mismunandi stillingar á gítarnum. Honum fannst lagið fyrst of jólalegt og væmið en lagið fjallar um nostalgíu og hlýnun jarðar, sem gaf honum efasemdir um lagið. Eftir að bandið sannfærði hann um að þetta væri hugsanlega besta lagið sem hljómsveitin hafði samið fór bandið beint með það í stúdíó. Eftir upptökur voru þau ekki sátt með hvernig það kom út og tóku þá ákvörðun að leita af öðru stúdíói á meðan það var giggað um sumarið. Í september skellti hljómsveitin sér í bústað og þar var lagið tekið upp aftur, en eins og áður þá var bandið ekki sátt með útkomuna. Bandið snéri sér aftur í stúdíó í október á þessu ári. Í þetta sinn til Arnórs Sigurðssonar og þá fyrst fór lagið að hljóma þokkalega. Ánægð með útkomuna var lagið sent í masteringu til John Davis hjá Metropolis Studios sem var sjálfur mjög ánægður með lagið. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið og mælir Albumm svo sannarlega með því. Hægt er að fylgjast nánar með Laminar Flow á Facebook og Instagram. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Lífið Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Tónlist
Honum fannst lagið fyrst of jólalegt og væmið en lagið fjallar um nostalgíu og hlýnun jarðar, sem gaf honum efasemdir um lagið. Eftir að bandið sannfærði hann um að þetta væri hugsanlega besta lagið sem hljómsveitin hafði samið fór bandið beint með það í stúdíó. Eftir upptökur voru þau ekki sátt með hvernig það kom út og tóku þá ákvörðun að leita af öðru stúdíói á meðan það var giggað um sumarið. Í september skellti hljómsveitin sér í bústað og þar var lagið tekið upp aftur, en eins og áður þá var bandið ekki sátt með útkomuna. Bandið snéri sér aftur í stúdíó í október á þessu ári. Í þetta sinn til Arnórs Sigurðssonar og þá fyrst fór lagið að hljóma þokkalega. Ánægð með útkomuna var lagið sent í masteringu til John Davis hjá Metropolis Studios sem var sjálfur mjög ánægður með lagið. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið og mælir Albumm svo sannarlega með því. Hægt er að fylgjast nánar með Laminar Flow á Facebook og Instagram. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Lífið Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Tónlist