Fátíð í beinni Stefán Árni Pálsson skrifar 5. desember 2020 14:53 Einar, Bubbi, Kristín og Tolli í vinnustofu Tolla. Þar er löngu orðin árviss viðburður og jólahefð hjá Tolla Morthens myndlistarmanni að bjóða gestum og gangandi til sín á opið hús í tengslum við fullveldisdaginn okkar 1. desember en í ár var ákveðið að breyta aðeins út af vananum og verður fátíðinni slegið upp á laugardaginn.
Af hverju fátíð, jú fátíð vegna þess að sóttvarnareglur leyfa ekki fleiri en tíu manns á vinnustofunni og þess vegna verður fátíðinni streymt í gegnum Facebook og á Vísi. Vinnustofan verður svo opin alla föstudaga og laugardaga fram að jólum þar sem hægt verður að hitta Tolla. Bubbi Morthens og Einar Már Guðmundsson hafa verið fasta gestir Tolla á fullveldishátíðinni þessi þrjátíu ár en ýmsir aðrir góðir gestir hafa reki á fjörur málarans á þessum árum sem eru að baki. Í ár verða vitringarnir þrír í fararbroddi en með þeim á laugardaginn verður Kristín Morthens listamálari sem síðustu ár hefur mest verið að vinna og sýna verk sín í Kanada og Þýskalandi. Síðustu misseri hefur hún hins vegar verið hér heim vegna aðstæðna og unnið hér að sinni sköpun. Kristín mun sýna olíumálverk en verk hennar eru litrík og kraftmikil og hafa vakið mikla athygli. Áralöng hefð Í fyrra tók Bubbi í fyrsta sinn upp pensilinn með þeim hætti að eftir hann sátu fullsköpuð verk en hann hefur verið að mála olíuverk byggð á mörgum þekktustu textanna hans. Verk hans seldist hratt í fyrra en nú er hann með tíu ný verk í seríunni. „Þetta er áralöng hefð hjá mér og mér þykir afar vænt um þetta verkefni og þakklátur að vinir mínir vilja koma með mér í þetta. Ég nýti líka alltaf þetta tækifæri til að taka með mér ungt upprennandi og kraftmikið listafólk til að kynna fyrir gestunum mínum. Það er ábyrgðar hlutur að við sem eldri erum greiðum götur þeirra sem er að byrja á þessari vegferð sem við þekkjum svo vel. Í þessu tilfelli rennur mér blóðið til skyldunnar í orðsins fyllstu merkingu,” segir Tolli. „Ég hef verið með stóra bróðir að mála og átt geggjaðar stundir og ég fer í gymmið mjög snemma og kem svo til hans. Nokkrum sinnum í viku kemur til hans þjálfari í bardaga íþróttum þá mála ég meðan Tolli er frjáls í flæðinu,” sagði Bubbi nýlega á Facebook þar sem hann birti mynd af stóra bróður æfa box í stúdíóinu á Héðinsgötu. Dagskráin verður milli kl 15:00 og 16:00 á Facebook síðu Tolla og sannarlega velkomnir þar enda fjöldatakmarkanir engar þar. Þar munu Kristín, Bubbi og Tolli segja frá verkunum sínum og kynna þau í mynd og svo mun Einar Már lesa upp úr nýútkominni bók sem eru endurprentun af þremur af hans þekktustu ljóðabókum og svo mun Bubbi Morthens leika nokkur vel valin lög. Þetta verður því vönduð dagskrá sem allir geta notið heima í hlýjunni í frostkuldanum sem spáð er um allt land um helgina.
Menning Tónlist Myndlist Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira