Áherslan er sett á stóru smáatriðin sem fullkomna matinn um hátíðirnar.
Í fyrsta þættinum fer matgæðingurinn Albert Eiríksson ítarlega yfir það hvernig matreiða skal fullkomnar sykurbrúnaðar kartöflur.
Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.
Hér að neðan má sjá uppskriftina sjálfa en allir þættirnir 12 eru nú þegar komnir inn á Stöð 2 Maraþon.
Sykurbrúnaðar kartöflur
- 1 kg soðnar kartöflur (ekki forsoðnar, þær eru of vatnsmiklar)
- 2/3 b sykur
- 1/3 b púðursykur
- 2 msk smjör
- 1/2 tsk salt
- 1 dl rjómi, sterkt kaffi eða vatn.
Flysjið kartöflurnar, best er að sjóða þær og flysja rétt áður en þær eru brúnaðar í sykrinum. Setjið sykur, púðursykur, smjör og salt á pönnu. Brúnið sykurinn og hellið rjómanum (eða kaffinu) út á þegar sykurinn er orðinn fallega brúnn, passið að hann brenni ekki. Hrærið stöðugt í en varlega. Hrærið í þangað til sykurinn hefur samlagast vökvanum, slökkvið undir og látið kartöflurnar varlega saman við (ekki láta kartöflurnar of snemma út í). Veltið þeim í sykurleginum í nokkrar mínútur.