Átta látnir eftir uppþot í fangelsi á Sri Lanka Atli Ísleifsson skrifar 30. nóvember 2020 12:02 Aðstandendur fanga í Mahara-fangelsinu biðla til lögreglumanns fyrir utan fangelsið sem er að finna í úthverfi höfuðborgarinnar Colombo. AP Að minnsta kosti átta eru látnir og 52 slasaðir eftir uppþot fanga í fangelsi á Sri Lanka. Talsmaður yfirvalda segir að til átaka hafi komið milli fanga og fangavarða.
Fangarnir eru sagðir hafa verið að mótmæla aðstæðum í fangelsinu vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita í fangelsum landsins og krafist þess að mörgum verði veitt snemmbúin reynslulausn. Ajith Rohana, talsmaður lögreglu, segir að fangaverðir hafi neyðst til að beita valdi til að ráða niðurlögum óeirðanna í Mahara-fangelsinu í úthverfi höfuðborgarinnar Colombo. Alls hafa um þúsund fangar á Sri Lanka greinst með Covid-19 í fangelsum landsins sem flest öll eru ofsetin. Eru fangarnir um 26 þúsund talsins í fangelsum sem eiga að geta hýst 10 þúsund fanga. Smittilfellum á Sri Lanka hefur fjölgað mikið síðasta mánuðinn í kjölfar tveggja hópsýkinga - í vefnaðarvöruverksmiðju annars vegar og á fiskmarkaði hins vegar. Alls hafa verið skráð um 23 þúsund tilfelli kórónuveirusmita á Sri Lanka frá upphafi faraldursins og þá hafa 116 dauðsföll verið rakin til sjúkdómsins Covid-19.
Srí Lanka Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira