Myndband: Porsche Taycan keyrir utan í einn bíl og ofan á annan Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 22. nóvember 2020 07:00 Skjáskot úr myndbandinu.
Myndband af ökumanni Porsche Taycan bifreiðar sem reynir að leggja í brattri innkeyrslu hefur vakið mikla athygli á internetinu. Ökumaðurinn virðist hafa ruglast á inngjöf og bremsu. Bíll eins og Taycan sem skilar aflinu nánast rakleiðis í malbikið er fljótari að valda skaða og tjónið verður oft meira þegar óhöpp verða, þar sem ökumaður ruglast á inngjöf og bremsum. Bíllinn er yfirleitt kominn fyrr á meiri ferð. Umrætt myndband sýnir Taycan bifreið koma að húsi og nema staðar í innkeyrslunni. Nánast um leið og bíllinn stöðvast rýkur hann af stað og lendir á einum bíl, sem virðist vera Renault Scenic og lendir svo ofan á BMW 1, bláum að lit, eftir að hafa farið fram af vegg.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent