Lífið

Stjörnulífið: Trúlofun, áhættuleikur og skírn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sérstakir tímar en alltaf nóg um að vera á Instagram. 
Sérstakir tímar en alltaf nóg um að vera á Instagram. 

 Stjörnulífið þessa helgina heldur áfram að litast af hertum takmörkunum sem tóku gildi á landinu á dögunum og heldur áfram næstu vikurnar.

Fólk er heilt yfir lítið á faraldsfæti og þurftu að nota ímyndunaraflið til að skemmta sér vel á þessum einkennilegum tímum.

Svala Björgvins birti allavega mynd af sér sem greinilega var tekin í Bandaríkjunum á sínum tíma en hún var áður búsett þar. 

Áhrifavaldurinn Tanja Ýr er farin af stað með nýtt fyrirtæki sem nefnist Glamista hair.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir fagnaði 28 ára afmæli sínu um helgina og gerði hún það með fjölskyldu sinni og góðum vinum. 

Elísabet Gunnars og Gunnar Steinn fagna 17 ára sambandsafmæli.

Erna Kristín heldur áfram að hvetja til jákvæðrar líkamsímyndar.

 „Djöfull er gaman að gera þessa þætti og mikið þykir mér vænt um allt peppið og ástina,“ segir Björn Bragi Arnarson sem hefur verið með spurningaþættina Kviss undanfarnar vikur. 

 Körfuboltamaðurinn fyrrverandi tók Masterinn í pottinum og það með stæl. 

 Kelsey Henson og Hafþór Júlíus Björnsson gáfu drengnum nafnið Stormur Magni Hafþórsson. 

Bardagakappinn Jón Viðar Arnþórsson starfar einnig sem áhættuleikari og virðist hafa verið á fullu í því verkefni uppi á jökli um helgina. 

Sunneva Einars og Jóhanna Helga stilltu sér upp fyrir vinkonumynd. 

Ísdrottningin Ásdís Rán skellti sér í bröns með vinkonu sinni í Búdapest. 

Sjónvarpskokkurinn Eva Laufey Kjaran fékk sér kakó með dætrum sínum út við sjó upp á Skaga. 

„Óútskýranleg & skilyrðislaus ást, endalausar áhyggjur, hræðsla en á sama tíma ómetanlegt þakklæti,“ segir Camilla Rut í fallegri færslu á Instagram. 

Sölvi Tryggvason skellti sér í myndatöku. 

Magnús Már Einarsson, ritstjóri Fótbolta.net, og Anna Guðrún trúlofuðu sig um helgina. 

Svali Kaldalóns er heldur betur að njóta sín úti á Tene. 

Sigmar Vilhjálmsson fór í helgargöngu.

Róbert Wessman og Ksenia Shakhmanovu kunna greinilega að nóta sín. 

Söngkonan Selma Björns er mikið jólabarn, er búin að skreyta húsið og meira að segja jólatréð er komið upp.

 Víkingur Heiðar spilaði á tónleikum með Ungverjanum István Várdai í Búdapest augnablikum áður en Ungverjar lögðu Ísland 2-1 í umspili um sæti á EM.

Auðunn Blöndal fagnaði eins árs afmæli frumburðarsins. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.