Werner hetjan í sigri Þjóðverja Ísak Hallmundarson skrifar 14. nóvember 2020 22:01 Werner skoraði tvö mörk í kvöld. getty/Robert Michael
Þýskaland vann 3-1 sigur á Úkraínu í riðli 4 í A-deild Þjóðadeildar UEFA í kvöld á meðan Sviss og Spánn gerðu 1-1 jafntefli. Roman Yaremchuk kom Úkraínu óvænt yfir á 12. mínútu leiksins en Leroy Sané jafnaði metin fyrir Þýskaland á 23. mínútu. Timo Werner kom Þjóðverjum yfir á 33. mínútu og staðan 2-1 í hálfleik. Werner var síðan aftur á ferðinni á 64. mínútu og innsiglaði 3-1 sigur Þýskalands. Með sigrinum tyllir Þýskaland sér á toppinn í riðlinum með níu stig þegar einn leikur er eftir. Úkraína er í þriðja sæti með sex stig. Sviss tók á móti Spáni og Remo Freuler kom heimamönnum yfir á 26. mínútu. Þannig var staðan í hálfleik. Á 57. mínútu fengu Spánverjar vítaspyrnu og fyrirliðinn Sergio Ramos fór á punktinn. Hann lét hinsvegar Yann Sommer verja frá sér. Þeir Ramos og Sommer mættust síðan aftur á vítapunktinum á 80. mínútu og aftur náði Sommer að verja frá varnarmanninum. Sommer hefði auðveldlega getað verið hetja leiksins en á 89. mínútu kom loks jöfnunarmark Spánverja þegar Gerard Moreno skoraði og vítaskyttan getur því andað léttar. Spánn er með átta stig í öðru sæti riðilsins, einu stigi á eftir Þýskalandi, en Sviss er með þrjú stig á botninum. Spánn og Þýskaland mætast í hreinum úrslitaleik um efsta sætið næsta þriðjudag.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira