Spái ekki í það hvar fólk á heima þegar ég vel byrjunarliðið Sindri Sverrisson skrifar 22. september 2020 12:46 Jón Þór Hauksson í viðtali í gær fyrir stórleikinn við Svíþjóð. mynd/stöð 2
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, tekst á við sína stærstu áskorun á þjálfaraferlinum til þessa þegar Ísland mætir Svíþjóð í kvöld. Svíþjóð vann til bronsverðlauna á HM í Frakklandi í fyrra og er í fimmta sæti heimslistans. Ísland komst ekki á HM en er í 19. sæti heimslistans. Jón Þór var ráðinn landsliðsþjálfari undir lok árs 2018 og undir hans stjórn hefur Ísland farið nokkuð þægilega í gegnum fyrstu fjóra leikina í undankeppni EM. Nú er komið að stærstu áskoruninni: „Tilbúin og full tilhlökkunar“ „Algjörlega. Það er mikil tilhlökkun að mæta Svíum og þeir eru auðvitað sigurstranglegri í þessum leik, sem eitt af toppliðunum í fótboltanum. Þetta verður mjög krefjandi verkefni fyrir okkur og erfiður leikur, en að sama skapi erum við tilbúin og full tilhlökkunar,“ sagði Jón Þór. Íslenska liðið hafði ekki komið saman síðan í mars, vegna kórónuveirufaraldursins, þegar hópurinn hittist í byrjun síðustu viku. Liðið leit hins vegar afar vel út gegn slöku liði Lettlands, í 9-0 sigrinum síðasta fimmtudag. Þar fengu ungir leikmenn á borð við Sveindísi Jane Jónsdóttur, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Alexöndru Jóhannsdóttur að láta ljós sitt skína, og gáfu Jóni Þór varla mikið tilefni til að skipta þeim út í dag? „Sem betur fer er samkeppnin um stöður í íslenska kvennalandsliðinu mikil. Við erum með breiðan hóp og fullt af leikmönnum sem hafa staðið sig frábærlega. Stór hluti af þeim sem komu ekki inn á í Lettlandsleiknum gera stórt tilkall til þess að spila landsleiki og eru svo sannarlega nógu góðar til þess. Við getum spilað á mörgum mönnum sem hafa verið að gera mjög góða hluti, og það eru forréttindi að hafa þannig hóp,“ sagði Jón Þór með pókersvip. Völdum það lið sem við töldum sterkast gegn Lettum og það gekk mætavel Jón Þór hefur hvatt íslenska leikmenn til að fara út í atvinnumennsku, í sterkari deildum en þeirri íslensku, og þess vegna kom það einhverjum spánskt fyrir sjónir að sjá leikmenn sem farið hafa út sitja á bekknum gegn Lettlandi. Þannig má nefna Berglindi Björg Þorvaldsdóttur, Söndru Maríu Jessen, Svövu Rós Guðmundsdóttur og fleiri. Jón Þór segist vissulega vilja að leikmenn spili í sem sterkustum deildum en kveðst ekki velja byrjunarlið sitt út frá því hvar leikmenn spili: „Þetta er eitthvað sem að við í íslenskri knattspyrnu þurfum að huga að. Við viljum auðvitað fá sem allra flesta í stórar deildir í Evrópu. Við erum auðvitað með marga frábæra leikmenn sem hafa spilað frábærlega í Evrópu, en ég hef talað um að við þurfum mögulega að fá leikmenn fyrr út, þegar þeir eru yngri, í þessar deildir. Fyrst og fremst erum við hins vegar að skapa ákveðinn liðsramma hér hjá okkur og þetta var það lið sem við ákváðum að væri sterkasta liðið okkar á fimmtudaginn. Ég held að það hafi gengið mætavel – við skoruðum níu mörk og lékum mjög vel. Samkeppnin er hörð og þegar við veljum byrjunarlið Íslands þá spáum við ekki í það hvar fólk á heima eða hvaðan það kemur. Við veljum það lið sem við teljum sterkast í það sinnið. En ég held að það muni alltaf hjálpa íslenskri knattspyrnu til lengri tíma að við höfum fleiri leikmenn sem spila á hæsta stigi, eins og við höfum séð Söru Björk og fleiri gera. Það hlýtur að vera langtímamarkmiðið, til að fara hærra með landsliðið og leikmenn okkar almennt.“ Klippa: Jón Þór fyrir leikinn við Svíþjóð
EM 2021 í Englandi Tengdar fréttir Risastór prófraun fyrir Ísland: „Finnst að við eigum að geta náð þeim“ „Við höfum verið að bíða eftir svona alvöru leik í smá tíma, svo við erum mjög spenntar,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, fyrir stórleikinn við Svíþjóð í kvöld. 22. september 2020 12:01 Þjálfari Svía: Íslenska liðið spilar svolítið líkt okkur Landsliðsþjálfari Svíþjóðar, Peter Gerhardsson, segir leitt að geta ekki skoðað sig um í Reykjavík vegna kórónuveirufaraldursins. Hann segir sænska liðið bera virðingu fyrir því íslenska fyrir toppslaginn í kvöld. 22. september 2020 08:31 „Sem betur fer er samkeppnin um stöður mikil“ Jón Þór Hauksson, íslenski landsliðsþjálfari kvenna, er ánægður með samkeppnina í íslenska landsliðinu og er ekki hræddur að velja byrjunarliðið fyrir leikinn stóra annað kvöld. 21. september 2020 19:48 Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir stórleikinn við Svíþjóð Glódís Perla Viggósdóttir og Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari sátu fyrir svörum á blaðamannafundi KSÍ fyrir stórleikinn við Svíþjóð í undankeppni EM. 21. september 2020 16:42 Líst illa á veðrið en er bjartsýn á að Glódís spili fyrir eitt besta lið heims Caroline Seger, hinn þrautreyndi fyrirliði Svía, telur að Glódís Perla Viggósdóttir eigi eftir að spila fyrir eitt af bestu félagsliðum heims. Hún er vör um sig fyrir stórleikinn við Ísland annað kvöld. 21. september 2020 15:22 Segir Glódísi eina þá bestu í Svíþjóð og Söru meðal þeirra bestu í heimi Peter Gerhardsson, sem stýrði Svíum til bronsverðlauna á HM í fyrra, býst við miklum slag á Laugardalsvelli á morgun þegar Ísland og Svíþjóð mætast í toppslag F-riðils í undankeppni EM kvenna í fótbolta. 21. september 2020 13:28 Einkunnir Íslands: Dagný með þrennu í fyrri hálfleik og ungu Blikarnir frábærir Íslensku stelpurnar fengu góðar einkunnir eftir sigurinn stóra á Lettlandi á Laugardalsvelli í undankeppni EM í kvöld. 17. september 2020 21:05 Mest lesið Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Fótbolti Eiði Smára ekki skemmt Enski boltinn Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Íslenski boltinn Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Fótbolti Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Enski boltinn Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Íslenski boltinn Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sport Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Fótbolti Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Íslenski boltinn Sveindís Jane tileinkaði kærasta sínum markið Fótbolti Fleiri fréttir Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Eiði Smára ekki skemmt Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu „Mér finnst það ekki vandamál“ Draga verulega úr umfjöllun um leiki Írlands við Ísraels Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Dagur Dan glímdi við Messi í nótt Sveindís Jane tileinkaði kærasta sínum markið Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rautt „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ „Svo kemur bara mark eftir mark eftir mark“ „Hefði verið sætt að ná þrennu í fyrri hálfleik“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið „Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“ Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Sjá meira
Risastór prófraun fyrir Ísland: „Finnst að við eigum að geta náð þeim“ „Við höfum verið að bíða eftir svona alvöru leik í smá tíma, svo við erum mjög spenntar,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, fyrir stórleikinn við Svíþjóð í kvöld. 22. september 2020 12:01
Þjálfari Svía: Íslenska liðið spilar svolítið líkt okkur Landsliðsþjálfari Svíþjóðar, Peter Gerhardsson, segir leitt að geta ekki skoðað sig um í Reykjavík vegna kórónuveirufaraldursins. Hann segir sænska liðið bera virðingu fyrir því íslenska fyrir toppslaginn í kvöld. 22. september 2020 08:31
„Sem betur fer er samkeppnin um stöður mikil“ Jón Þór Hauksson, íslenski landsliðsþjálfari kvenna, er ánægður með samkeppnina í íslenska landsliðinu og er ekki hræddur að velja byrjunarliðið fyrir leikinn stóra annað kvöld. 21. september 2020 19:48
Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir stórleikinn við Svíþjóð Glódís Perla Viggósdóttir og Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari sátu fyrir svörum á blaðamannafundi KSÍ fyrir stórleikinn við Svíþjóð í undankeppni EM. 21. september 2020 16:42
Líst illa á veðrið en er bjartsýn á að Glódís spili fyrir eitt besta lið heims Caroline Seger, hinn þrautreyndi fyrirliði Svía, telur að Glódís Perla Viggósdóttir eigi eftir að spila fyrir eitt af bestu félagsliðum heims. Hún er vör um sig fyrir stórleikinn við Ísland annað kvöld. 21. september 2020 15:22
Segir Glódísi eina þá bestu í Svíþjóð og Söru meðal þeirra bestu í heimi Peter Gerhardsson, sem stýrði Svíum til bronsverðlauna á HM í fyrra, býst við miklum slag á Laugardalsvelli á morgun þegar Ísland og Svíþjóð mætast í toppslag F-riðils í undankeppni EM kvenna í fótbolta. 21. september 2020 13:28
Einkunnir Íslands: Dagný með þrennu í fyrri hálfleik og ungu Blikarnir frábærir Íslensku stelpurnar fengu góðar einkunnir eftir sigurinn stóra á Lettlandi á Laugardalsvelli í undankeppni EM í kvöld. 17. september 2020 21:05