Í beinni: Ná Fylkismenn að halda toppsætinu? Sigtryggur Óskar Hrafnkelsson skrifar 13. september 2020 19:00 Dusty Academy mætir Fylki. vísir
Önnur vika Vodafonedeildarinnar í League of Legends hefst í kvöld í beinni á Stöð 2 Esports kl. 19:30. Í fyrstu viðureign kvöldsins mætir feikansterkt lið Dusty Academy liði Fylkis en eins og er deila Fylkir fyrsta sæti með VITA og XY Esports. Dusty hinsvegar þurfti að þola annað erfitt tap gegn XY Esports í ótrúlega spennandi leik og náði því ekki fullu húsi stiga. Þeir virðast ekki hafa jafnað sig alveg á því að missa Nipplu yfir til XY.Esport í sumar og Fylkir getur því reynt að halda sér efst í stigatöflunni. Það skal samt vera á hreinu að spilararnir í Dusty Academy eru með bestu LoL spilurum landsins - þó þeir séu haltrandi munu þeir bíta frá sér. Því er mikil pressa á Fylkismenn að gera allt sem þeir geta til að hækka sigurlíkurnar sínar og mun valið á hetjum skipta gríðarlegu máli. Í botnbaráttunni hittast KR og Make It Quick. Eins og nefnt var í síðustu viku unnu MIQ sér inn plássið sem Tindastóll gaf frá sér. Bæði liðin töpuðu öllum leikjunum sínum í síðustu viku en MIQ áttu strangheiðarlega tilraun gegn Fylki, þó það hefði að lokum endað í sáru tapi. Sömuleiðis voru KR-ingar yfir Dusty Academy í gulli í þó nokkurn tíma þar til að Dusty menn hrukku í gang. Það er því fullsnemmt að tala um botnlið MIQ - Pongu Pongu þurftu að þola erfitt tap gegn Fylki eftir að hafa verið gríðarlega langt yfir. Í kjölfarið kom verra tap gegn VITA þar sem þeim var hreinlega pakkað saman. Núna er tækifærið fyrir bæði lið að girða sig í brók, sýna að síðasta vika fór ekki með þá og sækja sér tvö stig. VITA - KR Í gegnum deildirnar hefur verið erfitt fyrir KR-ingana að sigra FH og það gæti verið raunin áfram þó að FH-ingar spili undir öðru nafni. Nýr miðjuspilari VITA stóð algjörlega undir gælunafninu "Geggjaður" koOn í síðustu viku eftir frábæra frammistöðu og það er klárt mál að það væri mikill andlegur sigur fyrir KR-inga að ná höggi á VITA hér. Fylgist með í beinni í opinni dagskrá á Stöð 2 Esports eða á Twitch streyminu, https://www.twitch.tv/SiggoTV, útsending hefst klukkan 19:30.
Vodafone-deildin Mest lesið Ólympíufari á lista yfir tíu eftirlýstustu glæpamenn FBI Sport Setti styttu af „hataðasta manni Svíþjóðar“ fyrir utan þjóðarleikvanginn Fótbolti Sautján ára íþróttastjarna drepin í loftárás Rússa Sport Kjánaleg skot bíta ekki á Heimi: „Verða að eiga það við sig“ Fótbolti Barcelona bað leikmann sinn um að hætta að skora mörk Fótbolti „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Íslenski boltinn Slógu HM-met Íslands en er þetta lítil eyja eða bara útibú frá Hollandi? Fótbolti Sjáðu ræðu Niks eftir dramatískan kveðjuleik: „Þetta var fullkominn endir“ Fótbolti Thelma Karen til sænsku meistaranna Fótbolti Dagskráin í dag: Flottir leikir í Bónus deild karla og Big Ben Sport