Lífið

„Lífið er ekki sanngjarnt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alda Karen þurfti að takast á við mikla gagnrýni í tengslum við fyrirlestur sinn fyrir ári síðan.
Alda Karen þurfti að takast á við mikla gagnrýni í tengslum við fyrirlestur sinn fyrir ári síðan. vísir/vilhelm

Fyrirlesarinn Alda Karen Hjaltalín hefur vekið mikla athygli fyrir fyrirlestra sína undanfarin ár og þá aðallega fyrir fyrirlestraröðina Life Masterclass. Hún er gestur vikunnar í Einkalífinu en á næstunni stendur hún fyrir Life Masterclass 3 í Hörpunni.

Fyrirlestur Öldu Karenar í Laugardalshöllinni vakti mikla athygli á síðasta ári því í aðdraganda hans sagðist Alda Karen hafa komist að því að fjöldi sjálfsvíga á Íslandi hefði verið mikill árið 2018 og kom hún inn á það í viðtali í Íslandi í dag á Stöð 2.

„Alveg bara hrikalega mikið. Þetta er stærsti sjúkdómurinn sem skekur mannkynið,“ sagði Alda Karen sem sagði í kjölfarið að lausnin við þessum vanda væri einfaldur. Þeir sem væru haldnir slíkum hugsunum ættu einfaldlega að segja við sjálfa sig: „Þú ert nóg.“

Alda segist vera ánægð að hafa fengið gagnrýni þó að hún telji hana hafi verið ósanngjörn að sumu leyti.

„Ég var mjög stolt af því að fá hlutverk í þessari umræðu þó svo að ég hafi viljað vera í mjög mörgum öðrum hlutverkum,“ segir Alda en hún skilgreinir ávallt hvernig gagnrýni hún fær og reynir síðan að taka til sín það sem hún vill og telur að sé nauðsynlegt.

„Gangrýnin eftir Ísland í dag um að ég hefði illa að máli komist var ég sammála og ég hefði geta orðað þetta miklu betur enda ekki búin að vera mikið í sjónvarpi. Annað tók ég ekki til mín. Ég má tala um hlutina og ég er aldrei að leggja neinum lífsreglurnar.“

Hún heldur áfram:

„Ég var pínu sár fyrst þegar gagnrýnin kom fram því mér fannst margt í henni pínu ósanngjarnt. Lífið er ekki sanngjarnt en það þýðir ekki að það geti ekki verið gott. Ég er mjög heppin að vera með mjög gott stuðningsnet í kringum mig. Frábæra fjölskyldu og yndislegan vinahóp.“

Í þættinum hér að ofan ræðir hún einnig um óhamingju og hvernig hún sneri við lífinu, um lífið í New York, um hvernig hún vakti fyrst athygli fyrir fyrirlestra sína, um áföll sem hún varð að takast á við og margt fleira.


Tengdar fréttir

Lygilegar bransasögur með Steinda

Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., hefur heillað þjóðina með gríni síðastliðinn áratug. Steindi er gestur vikunnar í Einkalífinu.

„Við vorum eins og systur“

„Ég er eiginlega ekki búin að átta mig á þessu ennþá,“ segir athafnarkonan Kristbjörg Jónasdóttir, sem er gestur Einkalífsins í þessari viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.