Martin í rússíbana fyrir bikarúrslitaleikinn | Elvar góður í Svíþjóð Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2020 20:20 Martin Hermannsson gæti mögulega fagnað titli á sunnudaginn. vísir/epa
Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlín unnu magnaðan sigur í framlengingu í sínum síðasta leik fyrir bikarúrslitaleikinn í þýska körfuboltanum. Alba mætir Oldenburg í bikarúrslitaleiknum á sunnudag eftir 45 mínútna spennuleik gegn Ulm í kvöld. Heimamenn í Ulm virtust vera að tryggja sér sigur þegar þeir komust í 96-93 aðeins 9 sekúndum fyrir leikslok en Peyton Siva jafnaði metin með þriggja stiga flautukörfu og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni voru Berlínarbúar sterkari en í henni skoraði Martin tvö stig og átti tvær stoðsendingar. Lokatölur urðu 112:106. Samtals átti Martin tíu stoðsendingar í leiknum auk þess að skora átta stig. Hann hitti þó ekki úr neinu af átta þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Alba er í 3. sæti þýsku deildarinnar með 26 stig og leik til góða á efstu tvö liðin. Bayern München er langefst með 34 stig en Ludwigsburg er með 28. Í sænsku úrvalsdeildinni unnu Elvar Már Friðriksson og félagar í Borås liðið í 3. sæti, Köping Stars, 88-77. Elvar átti flottan leik en hann skoraði 15 stig, átti 7 stoðsendingar og tók 4 fráköst. Borås styrkti því stöðu sína á toppnum en liðið hefur unnið 24 af 28 leikjum sínum og er fjórum stigum á undan Luleå sem er í 2. sæti. Köping Stars eru með 38 stig.
Körfubolti Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira